157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:52]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér er verið að leggja til að fella niður lítið, nokkuð krúttlegt ákvæði í tekjuskattslögunum. Krúttlegt að því leyti að það er auðvitað ákaflega sjaldan nýtt. Þetta er um það að ræða að einstaklingur sem ekki hefur atvinnutekjur, er með persónuafslátt en hefur einhverjar fjármagnstekjur og vill lifa af fjármagnstekjunum geti nýtt persónuafsláttinn fyrir fjármagnstekjurnar. Þetta hefur verið heimilt lengi í tekjuskattslögum. Nei, þessi ríkisstjórn vill frekar að viðkomandi segi sig á sveitina væntanlega, þiggi einhverjar bætur, atvinnuleysisbætur, eða jafnvel segi sig á sveitina hreinlega og nýti persónuafsláttinn í þeim tilgangi að mæta bótum. En það eru raunverulega til einhverjir örfáir sem kjósa að vera ekki á bótum en kjósa kannski að draga fram lífið, að þreyja þorrann með einhverjum fjármagnstekjum. Má ekki una þeim þess? Nei, þessi ríkisstjórn getur ekki unnt þeim þess og það þarf að fella þetta niður. Alveg stórfurðulegt og Miðflokkurinn leggst gegn þessari tillögu.