157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:57]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegi forseti. Það kann að vera að maður sé farinn að missa athygli hér í þessari atkvæðagreiðslu en mér sýnist sem svo að hér sé verið að greiða atkvæði um það að afnema sérstaka heimild ríkisskattstjóra til að endurgreiða staðgreiðslu launamanns ef hún var 20% hærri en væntanleg álagning. Það hljómar þannig og í því ljósi, ef það er þannig, þá greiðir Miðflokkurinn atkvæði gegn þessari tillögu.