157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:04]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka þér fyrir að gefa mér fimm mínútur til þess að gera grein fyrir atkvæði mínu samkvæmt klukkunni. Ég ætla ekki að nýta þær allar. Við erum einfaldlega að koma hingað upp til að benda á að hér er verið að hækka skráningargjald í opinbera háskóla úr 75 þús. kr. í 100 þús. kr. Þessu hefur verið mótmælt, m.a. af stúdentum í Háskóla Íslands, og við tökum undir þá gagnrýni, við í Framsókn. Það hefur ekki farið fram almennilegt áhrifamat á því hvað þetta mun þýða og þar af leiðandi erum við á rauðu í þessum lið hér sem felur í sér að hækka álögur á ungmenni sem hyggja á nám við opinbera háskóla.