157. löggjafarþing — 50. fundur, 16. des. 2025.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
2. mál
Forseti. Það eru held ég allir sammála um að það var gengið of langt í skattheimtu á skemmtiferðaskip þannig að meiri hlutinn ætlaði aðeins að vinda ofan af því en við teljum í Miðflokknum að ekki hafi verið nóg gert vegna þess að skaðinn er skeður. Því þarf að setja meiri hvata inn í kerfið til þess að skemmtiferðaskipin komi frekar á næsta ári og taka þessa skattheimtu í skrefum. Það er tillaga Miðflokksins og ég vona að þið skoðið það að styðja hana.