157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:08]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um að lækka innviðagjald á skemmtiferðaskip í millilandasiglingum og halda áfram tollfrelsi á leiðangursskip. Hér erum við að vinda ofan af illa ígrunduðum tillögum eða aðgerðum fyrri ríkisstjórnar og það hefur svo sannarlega komið í ljós hvaða áhrif þær höfðu. Það var algjört hrun í bókunum skemmtiferðaskipa en eins og margir hér inni vita er móttaka skemmtiferðaskipa hryggjarstykkið í ferðaþjónustu á landsbyggðinni og er risastór þáttur í að dreifa ferðamönnum um landið. Þess vegna segi ég já.