breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Já, ég styð þessa skattalækkun heils hugar og það er alveg rétt að þetta var ekki nógu vel ígrundað. En hvar var stjórnarandstaðan þegar við greiddum atkvæði um fjárlögin síðast? Ekki til staðar. Það voru ekki einu sinni fluttar ræður hér í 2. umræðu. Það kom ekki einu sinni nefndarálit frá þeim fulltrúum sem sátu í fjárlaganefnd þá, hvorki núverandi hæstv. forsætisráðherra, hæstv. dómsmálaráðherra né hæstv. innviðaráðherra. Stjórnarandstaðan á síðasta þingi var bara ekki vakandi, þannig að þakkið nú fyrir að hafa verið hér í dag með okkur í þessari áhugaverðu atkvæðagreiðslu þar sem er dregið fram hver raunveruleg afstaða ykkar er til skattahækkana á venjulegt fólk. Það liggur þá alveg klárt fyrir hver afstaða fólks er, og ég segi já við þessu.