157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:10]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég styð þetta mál, er á grænu. Þetta er mikilvægt mál og það var ekki gott hvernig var staðið að þessum málum í fyrra en ég hef jafn miklar áhyggjur af því sem er að gerast núna varðandi bílaleigur í landinu og ferðaþjónustuna úti á landi. Nákvæmlega sömu áhyggjur og ekki minni. Ég hafði þær í fyrra varðandi þetta gjald. Tollfrelsið var lengt og ég hvet svo sannarlega þingheim til að gera tollfrelsið varanlegra þannig að það verði til fyrirsjáanleiki vegna þess að það sem við ættum alltaf að hugsa um er fyrirsjáanleiki og samkeppnishæfni, að tryggja það.