breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég styð þessa tillögu. Það sem er hins vegar alvarlegra er, af því að hér er verið að bregðast við því sem ferðaþjónustan bendir á, að nú erum við búin að vera að greiða atkvæði um skattahækkanir og gjaldahækkanir á m.a. ferðaþjónustuna sem er þetta innviðagjald á sterum. Það mun, eins og allar umsagnir eru búnar að benda á, hafa alveg geigvænlega alvarlegar afleiðingar fyrir ferðaþjónustuna í landinu. En er hlustað á það? Nei, það er ekki verið að hlusta á það, virðulegur forseti, og það er þyngra en tárum taki að horfa upp á öll þau varnaðarorð sem er búið að hafa hér uppi. 60% ferðamanna ferðast um landið á bílaleigubílum, 60% ferðamanna. Það komu tugir ef ekki hundruð blaðsíðna af umsögnum frá bílaleigunum. Var eitthvað hlustað á það? Nei, ekki neitt. Þetta á að taka gildi eftir nokkra daga.