breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég mun styðja þessa breytingartillögu heils hugar og vil raunar þakka hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir að koma með þessa mikilvægu breytingartillögu þar sem við erum að vinda ofan af þeirri ákvörðun sem var tekin hér í fyrra og hefur haft gríðarlega alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir skemmtiferðaskip og komu þeirra á hafnir vítt og breitt um landið. Ég styð þessa tillögu heils hugar. Sömuleiðis með tollfrelsið og er sammála því sem hér hefur komið fram að það skiptir máli að koma á fyrirsjáanleika og einhverju varanlegu kerfi hvað það varðar.