157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:13]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu styðjum við þessa skattalækkun hér sem er nauðsynleg. Það er alveg rétt að það voru gerð mistök þegar fjárlögin og bandormurinn voru kláruð síðast í starfsstjórninni, en það var reynt ýmislegt til að koma í veg fyrir að þurfa að samþykkja þessar tillögur þá, eins og að auka almenna hagræðingu í kerfinu, en það var bara enginn stuðningur við það í fjárlaganefnd sem var hálfgerð þjóðstjórn eins og við kláruðum fjárlögin og bandorminn síðast. En það sem verra er er að nánast allar aðrar skattahækkanir sem hafa verið til umræðu í dag og eiga eftir að vera í umræðu í næstu bandormum hafa ekki bara sömu vondu áhrifin af þessu heldur í miklu stærra mæli af því að þær eru miklu víðtækari en þessi. Því er ótrúlegt að sjá að ríkisstjórnin skilji vanda skattlagningar í þessu máli en ekki í öllum hinum. Þetta munu vera sömu afleiðingarnar og munið það, hæstv. ríkisstjórn, að ári liðnu þegar samdrátturinn (Forseti hringir.) í ferðaþjónustunni verður orðinn algjör og ég verð að fá að segja það að mér brá að heyra hvernig hæstv. forsætisráðherra talaði niður ferðaþjónustuna í Silfrinu í gær. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)