breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Forseti. Nú er búið að samþykkja gríðarlega miklar skattahækkanir á almenning í landinu. Reyndar sagði hæstv. ráðherra, af því hún var ekki í salnum þegar ég benti á það áðan, að venjulegt fólk væri lágtekjufólk og ég spurði hæstv. ráðherra ef hún kæmi einhvern tímann í atkvæðaskýringu hvað hún ætti við af því að við erum að reyna að ná utan um þessar skattahækkanir. Er millitekjufólk þá ekki venjulegt fólk í hennar huga? Mig langar að ítreka beiðni mína að einhver úr meiri hlutanum eða hæstv. ráðherrar komi upp og útskýri fyrir okkur og landsmönnum af hverju verið er að svíkja kosningaloforð. Af hverju? (IngS: Allt fólk er venjulegt fólk. Líka efnaminna fólk.)