157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[17:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa spurningu. Svarið er hugsanlega flókið, þ.e. það gæti verið að þetta sé aðeins mismunandi eftir sveitarfélögum og þar sem við erum stödd núna er nokkurs konar yfirgangstími en skilin eru samkvæmt mínum skilningi á miðju þessu ári og þessir fjármunir eru helmingur af heildarupphæðinni á ársgrundvelli. Í þeim tilvikum sem sveitarfélög, eða það er minn skilningur, eru með samninga við einkaaðila eða eru í eigin rekstri að mæta þörfum þessara barna, þá munu greiðslurnar renna til sveitarfélaganna eða til þess að fjármagna þá samninga sem sveitarfélögin eru með við viðkomandi einkaaðila. Síðan er ríkið að byggja upp úrræði og hefur í raun tekið fjárhagslega ábyrgð á börnunum nú þegar en í einhverjum tilvikum eru úrræðin rekin með samningum við viðkomandi sveitarfélög þótt ríkið muni með þessum fjármunum taka á sig endanlegar greiðslur. Þetta er alla vega minn besti skilningur eftir minni vitund. Ég kannaði þetta aðeins að gefnu tilefni fyrr í haust. Við getum fylgt þessu eftir ef þetta reynist ekki að öllu leyti rétt en þetta er minn skilningur.