fjáraukalög IV 2025.
Virðulegur forseti. Eins og ég kom inn á í fyrra svari mínu þá segir í greinargerðinni með fjáraukalagafrumvarpinu að ábyrgðin hafi flust yfir í júní. Þessi liður í fjáraukanum er til að hægt sé eftir atvikum að greiða sveitarfélögunum fyrir að vera með þessi börn í sinni umsjón þetta hálfa ár.
Varðandi hjúkrunarheimilin þá var þetta einfaldara vegna þess að þar var verið að létta af sveitarfélögunum 15% greiðsluskyldu í nýframkvæmdum og það tók í raun þegar gildi. Hins vegar var þriðji liðurinn, sem líka er mikilvægur, að ríkið tók yfir svokallaða öryggisvistun sem eru í raun fullorðnir einstaklingar sem hafa verið dæmdir eða eru af öðrum ástæðum í svokallaðri öryggisvistun án þess að vera með dóm í sumum tilvikum en í sumum tilvikum dæmdir. Ríkið mun taka það yfir en á yfirflutningstímanum, alveg eins og varðandi börn með flókinn vanda, getur komið til þess að ríkið í raun greiði þá í gegnum sveitarfélögin eða sveitarfélögunum beint fyrir að annast þá þjónustu.