fjáraukalög IV 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. framsögumanni, Degi B. Eggertssyni, fyrir ágætisyfirferð. Við erum hér með nefndarálit, sá sem hér stendur og hv. þingmenn Njáll Trausti Friðbertsson, Stefán Vagn Stefánsson og Karl Gauti Hjaltason. Þegar við förum yfir þessi fjáraukalög, og þetta eru fjórðu lögin, eins og hv. þingmaður kom inn á, er áhugavert að sjá hvað afkoman og tekjurnar eru miklu meiri á þessu ári en gert var ráð fyrir. Þrátt fyrir að þær hafi lækkað, þ.e. endurmatið frá því í september þar sem gert var ráð fyrir um 80 milljörðum, eru auknar tekjur árið 2025 um 73 milljarðar. Það er sérstaklega áhugavert í ljósi þess að hallinn var ráðgerður 63 milljarðar, þannig að ef við værum ekki með fjáraukalögin og útgjöldin í fjáraukalögunum kæmi 2025 út í plús, þ.e. hallalaus fjárlög.
Hv. þingmaður fór ágætlega yfir, og það var svona í takt við umræðuna, hvernig þróunin hefur verið þegar kemur að fjáraukalögum. Það er samt tilgreint ágætlega í frumvarpinu, á bls. 45 í greinargerðinni, og þar ætla ég bara að lesa beint upp, með leyfi forseta, kaflann sem heitir Hlutverk fjáraukalaga:
„Fjáraukalögum er markað skýrt hlutverk og efni í lögum um opinber fjármál. Í því felst að allar fyrirsjáanlegar fjárráðstafanir skuli koma fram í fjárlögum. Í fjáraukalögum verði hins vegar einungis leitað heimilda til að bregðast við útgjaldatilefnum sem voru ófyrirséð við afgreiðslu fjárlaga en sýnt þyki að útgjöldin falli til á árinu og að ríkissjóður komist ekki hjá að greiða þau. Fjáraukalögum er þannig einungis ætlað að taka til óhjákvæmilegra útgjalda af fyrrgreindum toga, þar á meðal vegna áhrifa nýrrar löggjafar á árinu, sem ekki er unnt að bregðast við með öðrum hætti samkvæmt lögum um opinber fjármál, s.s. með millifærslu fjárveitinga milli aðila og verkefna innan sama málaflokks á fjárhagsárinu eða nýtingu varasjóðs viðkomandi málaflokks eða almenns varasjóðs til að mæta auknum útgjöldum. Fjáraukalögum er því ekki ætlað að mæta útgjöldum til nýrra verkefna, aukins umfangs starfsemi eða rekstrarhalla einstakra málefnasviða og málaflokka umfram setta útgjaldaramma, enda ber samkvæmt lögunum að vísa slíkum tillögum um breytingar á fjárheimildum til umfjöllunar um fjárlög fyrir næsta fjárhagsár. Markmiðið með þessu verklagi er að festa í sessi fjárstjórnarvald Alþingis og auka ábyrgð ráðuneyta á áætlanagerð, stefnumótun og fjármálastjórn innan málefnasviða og málaflokka og draga úr þörf og umfangi fjáraukalaga.“
Virðulegur forseti. Þetta er á bls. 45 í greinargerð með frumvarpi þessu. Þegar skoðaðar eru útgjaldatillögur ríkisstjórnarinnar í frumvarpinu er ekki að sjá að liðirnir uppfylli þau skilyrði að vera óvæntir eða ófyrirséðir nema hugsanlega vegna brunans á Stuðlum en sú fjárveiting ætti betur heima í varasjóði. Það veldur miklum áhyggjum að svo virðist sem ríkisstjórnin ætli að hverfa frá því að fylgja lögum um opinber fjármál, ekki einungis vegna þess að hún fór ekki að þeim lögum í vor heldur var ekki gert ráð fyrir varasjóðum málaflokka í fjárlagafrumvarpinu nú í haust. Ríkisstjórnin kynnti það raunar sem hagræðingu að fella út varasjóðina en það er að sjálfsögðu engin hagræðing. Varasjóðurinn er sveigjanleikatæki til að ná fram markmiðum um ábyrg opinber fjármál, eins og segir í greinargerð með frumvarpi þessu, á bls. 45, samanber þann texta sem ég las áðan. Að taka út varasjóðina minnkar fjárhagslegan sveigjanleika ráðherra og ríkisstjórnarinnar og ýtir undir þann freistnivanda að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð er í frumvarpinu með nær eingöngu útgjaldatillögum sem ekki eiga heima í fjáraukalögum.
Það sem ég hef mestar áhyggjur af er einfaldlega þetta: Á þeim stutta tíma sem hæstv. ríkisstjórn hefur starfað er hún búin að færa vinnuna við opinber fjármál áratugi aftur í tímann. Nú er það ekki þannig, virðulegi forseti, að síðasta ríkisstjórn eða þarsíðasta ríkisstjórn eða þær ríkisstjórnir sem voru áður eða voru til staðar eftir að lögin um opinber fjármál voru samþykkt geti sagt að við höfum náð fullkomnun þegar kemur að framkvæmd á lögum um opinber fjármál. Það liggur alveg fyrir. Hins vegar breyttist mjög mikið með lögum um opinber fjármál og vinnubrögðin urðu mun betri. Það var þverpólitísk samstaða um það að þróa okkur áfram þannig að við værum að verða betri en ekki verri. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá var, virðulegur forseti, ein af ástæðunum fyrir því að farið var í þá vinnu um lög um opinber fjármál sú að alveg sama í hvaða flokki hv. þingmenn voru og hvaða flokkar voru á þingi þá voru menn sammála um að það verklag sem var viðhaft væri ekki nægilega gott. Það var vitað að áætlanagerðin í fjárlögum var ekki nægilega góð. Síðan var mikill freistnivandi þegar kom að fjáraukalögum, þ.e. menn gengu frá fjárlögum en af því að það var svo sannarlega þannig um búið í lagatexta að fjáraukalög áttu alltaf að koma til út af óvæntum og ófyrirséðum atburðum, til þess var fjáraukinn, þá var tilhneiging, og það var talað um það þegar lögin voru sett, alveg skýrt, og það var freistnivandi að taka inn þætti sem voru ekki óvæntir og ófyrirséðir.
Eins og kemur fram í þessum texta, virðulegi forseti, sem ég las beint upp úr greinargerðinni og kemur fram í nefndaráliti okkar, þ.e. greinargerð frumvarpsins, skrifaðri af hæstv. fjármálaráðherra, þá er alveg skýrt að hlutverk fjáraukalaga er ekki að vera með fjáraukalög eins og við erum með hér. Það er ekki hugmyndin. Í einhverjum tilfellum geta menn bent á, eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson nefndi varðandi verðlagsbætur og ýmislegt annað, ég held að hann hafi tilgreint það — en það er að vísu, ef ég man rétt og það kemur að vísu fram í þessu frumvarpi, uppgjör á varasjóði, þá var það, að ég taldi, nokkuð almenn regla að ef menn voru að reyna að nálgast þær breytingar sem urðu á launum á viðkomandi fjárlagaári með varasjóði — þannig bættu menn svolítið í varasjóðinn þegar t.d. kjarasamningar voru því að menn vissu ekki nákvæmlega hvað það yrði mikið en vildu mæta því með varasjóði.
En í þessu tilfelli eru mínar áhyggjur og áhyggjur okkar í minni hlutanum — ég veit ekki hvað það er, hvort það er einbeittur brotavilji eða hvort þeir hv. þingmenn sem eru núna í hæstv. ríkisstjórn, og svo að vísu einn sem er a.m.k. ekki kjörinn þingmaður — þær hvort þeir hafi einhvern veginn ekki vitað af þessu eða séu ekki meðvitaðir um hvernig lögin um opinber fjármál eru og hver bakgrunnurinn er, vegna þess að það var mjög sérstakt þegar hæstv. ríkisstjórn tók við hvernig eitt af fyrstu verkum hennar var að brjóta lögin um opinber fjármál. Það var ekki ég sem benti á það eða við hv. þingmenn í stjórnarandstöðunni, við tókum það svo sannarlega upp, en það var fjármálaráð, sem er þessi óháði aðili sem á að rýna fjármálaáætlun og fjármálastefnu, sem benti á það í sinni umsögn. Í hverju fólust brotin? Þau fólust í því að eins fljótt og auðið er á nýkjörin ríkisstjórn að koma fram með fjármálastefnu. Fjármálastefnan á að taka til markmiða í ríkisfjármálum og opinberum fjármálum og það er, getum við sagt, stærsta myndin. Þar er líka verið að líta til þátta sem geta bæði verið ógnir og tækifæri en þarf að fjalla um, t.d. breyting á aldurssamsetningu. Breyting á aldurssamsetningu hefur allra handa áskoranir í för með sér. Ef þjóðir eru að eldast þá þurfum við að líta til aukinnar áherslu eða að mæta þörf varðandi heilbrigðismálin svo dæmi sé tekið og ýmiss konar þjónustu sem þeir sem eldri eru nýta frekar en þeir sem yngri eru. Það er alveg skýrt í lögunum að eins fljótt og auðið er, og það var tilkynnt af hæstv. ríkisstjórn að hún ætlaði að koma inn með þetta í febrúar síðastliðnum, þá á fjármálastefnan að koma fram. Þegar hæstv. ráðherra er búinn að koma fram með fjármálastefnuna þá á að ræða hana. Hugsunin er sú að það á að taka akkúrat þessa stóru mynd, ræða hana og fá umsagnir o.s.frv. Hún fer í gegnum sína hefðbundnu þingmeðferð og er samþykkt. Þegar búið er að samþykkja hana þá á að byggja fjármálaáætlunina á fjármálastefnunni. En hæstv. ríkisstjórn sleppti þessu og kom í rauninni með fjármálastefnuna. Reyndar var það á fimmtudegi og á næsta þingdegi, mánudegi, þá kom fjármálaáætlun sem gerði það að verkum að umræðan um fjármálastefnuna varð hvorki fugl né fiskur og mjög lítið af umsögnum af því að aðilum fannst ekki vera tilefni til þess þar sem þessu var skellt saman í einu. Hvort tveggja kom, ef ég man rétt, 4. apríl.
Að auki, og þetta skiptir máli, er hugsunin sú bak við lög um opinber fjármál að þú sért með vandaðri áætlanagerð og með mælikvarða sem eru mælanlegir og menn geti fylgst með hvernig gengur að ná þeim, þannig að hvert málefnasvið kemur með í fjármálaáætluninni mælikvarða fyrir sín málefnasvið, hvaða árangri á að ná og hvernig á að ná þeim o.s.frv. Þessu var öllu meira og minna sleppt og fjármálaáætlunin sem ríkisstjórnin kom með síðastliðið vor var mjög þunnur þrettándi. Einhver kynni að hugsa: Heyrðu, þetta er bara eitthvert svona aukaatriði, þetta er bara tæknilegt. Jú, jú, þetta er vissulega að hluta til tæknilegt en þetta er grunnurinn að því að við séum að þróa okkur í þá átt að vanda okkur þegar kemur að opinberum fjármálum, hugsa til lengri tíma, vera með skilgreind markmið og geta fylgst með því hvernig okkur gengur að ná þeim. Ef það gengur illa að ná þeim þá geta menn líka litið til þess: Heyrðu, þessar leiðir sem við erum að fara eru ekki að nýtast sem skyldi þannig að við þurfum að gera eitthvað annað.
Þessi hugmynd er svo sannarlega ekki íslensk. Hún er fengin frá þeim þjóðum sem gengur best í opinberum fjármálum, þjóðum sem við vildum líkjast og sóttum til. Ástæðan fyrir því að ég þekki þetta nú ágætlega er að ég var varaformaður hv. fjárlaganefndar þegar við fórum með þetta frumvarp í gegnum þingið. Það var ánægjulegt að allir þingmenn í öllum flokkum sem að máli komu sögðu: Við eigum í þessu. Þetta var tíu ár í undirbúningi. Þáverandi hv. fjárlaganefnd fór og heimsótti aðrar þingnefndir. Við fórum til Svíþjóðar, man ég, þar sem við höfðum tækifæri til að setjast niður með kollegum okkar þingmönnum, sem og embættismönnum, og fara yfir það hvað gekk vel, hvað beri að varast, hvaða mistök þau gerðu o.s.frv. vegna þess — og það skipti engu máli í hvaða flokki við vorum — að það voru allir á sama báti hvað þetta varðaði.
Það eru mér því gríðarleg vonbrigði að sjá þessi vinnubrögð í vor og þegar menn koma síðan með hagræðingaraðgerðir sem felast í því að taka varasjóðina frá málefnasviðum þá blikka enn fleiri viðvörunarljós. Það virðist sem þessi hugmyndafræði, sem tók áratug í undirbúningi, hefur verið til staðar síðan, ef ég man rétt, virðulegi forseti, 1. janúar 2015, þegar þetta verður að lögum, og menn hafa verið að þróa sig í þessum málum — þegar menn taka í rauninni kjarnann úr því og sleppa því og koma síðan með fjárlagafrumvarp þar sem menn hreykja sér af því að vera með hagræðingu með því að taka út varasjóðina þar sem þú ert bara að taka út sveigjanleikann þá blikka enn fleiri viðvörunarljós.
Þessi fjárauki, virðulegi forseti — þegar við lesum þetta á bls. 48, þessi helstu útgjöld, þá er mjög erfitt að halda því fram að þetta sé óvænt og ófyrirséð. Þú gætir sagt að ÍL-sjóðinn hafi einhvern tímann þurft að gera upp og er kannski erfitt að gera ráð fyrir honum í fjárlögum því að þó að það hafi verið í undirbúningi lengi þá vissu menn ekki nákvæmlega hver sú tala yrði. Ef þú ert ekki með varasjóð fyrir því þá má alveg færa rök fyrir því að það sé með þessum hætti. Í hinum fjáraukalögunum, þar sem menn eru að færa, m.a. út af breytingum á verkaskiptingu í Stjórnarráðinu — þá erum við bara með tilfærslur. Það voru lítil útgjöld í því. Hér ertu hins vegar með útgjöld upp á 97 milljarða þó að það séu lífeyrisskuldbindingar og vaxtagjöld sem tengdust ÍL-sjóðnum. Breytingar á vaxtagjöldum eru 24 milljarðar og breytingar á lífeyrisskuldbindingum ríkisins sem — menn eru að taka núna kostnað sem deilist yfir mörg ár, bæði áður og eftir, og jú, gott og vel, menn afgreiða þetta með þessum hætti. Það er örugglega ekki í anda laganna en það er ein leið til að afgreiða það. Síðan ertu með einhverja 30 milljarða sem eru allra handa útgjöld. Það er erfitt að sjá eitthvað þar sem ætti ekki heima í fjárlögum næsta árs. Þá er ég bara að vísa í textann í greinargerðinni þar sem útskýrt er hvert hlutverk fjáraukalaga er.
Nú erum við hér, virðulegi forseti, einfaldlega að ræða þetta vegna þess að það skiptir máli að við reynum að ná betri árangri og fara fram á veginn þegar kemur að lögum um opinber fjármál. Það er hagur allra. Það er mjög vont, virðulegi forseti, ef það er, annaðhvort í orði eða á borði eða bæði í orði og á borði, ekki samstaða um að bæta þetta.
Það er nú ekki gott af því að þetta er mikilvægt mál og við ræddum þetta og það var ekki góður bragur á því eftir átta tíma atkvæðagreiðslu á föstudegi að þá var 1. umræða um þetta sem var náttúrlega snubbótt, eðlilega. Ég sagði þá við ráðherrann að mér sýndist að þegar ég liti á þetta þá værum við ekki búin að finna þessa töflu, að hér væri fyrst og fremst um hluti að ræða sem ættu að vera í fjárlögum en var með alla fyrirvara á því, því að ég var ekki búinn að skoða það. En það er augljóst að svo er.
Það er ekki gott þegar hæstv. ríkisstjórn byrjar með þessum hætti, þegar hæstv. ríkisstjórn byrjar á því að brjóta lögin um opinber fjármál. Það verður ekki aftur tekið því að fjármálastefnan á að koma í upphafi kjörtímabils en fjármálaáætlun kemur auðvitað aftur og sömuleiðis þegar menn, að því er virðist þegar maður lítur á þetta, virðast vera að fegra fjárlög næsta árs, setja hluti sem ættu að vera þar sem eru settir í fjáraukann — auðvitað vitum við að þessi svokallaða stöðugleikaregla, sem nú er kölluð skattaregla og er í rauninni útgjaldaregla, hangir á hnífsoddi. Af 1.600 milljarða, getum við sagt, útgjöldum ríkissjóðs þá munar 15 milljónum að hún falli. Ég held að vísu að hún sé fallin því að ég held að þessir tekjupóstar sem eru til staðar séu of veikir í fjárlögunum og harla ólíklegt að þeir muni standa og hefur verið gríðarlega erfitt að fá niðurbrot á þeim, vorum að fá tölvupóst eftir nokkrar vikur varðandi vörugjöldin.
Virðulegi forseti. Það var ekki til þess að manni liði eitthvað betur með það að sá tekjustofn myndi ná því sem stendur á blaði í fjárlögunum. En látum það liggja milli hluta. Það liggur hins vegar alveg fyrir að ef menn myndu setja það sem er þarna inni inn í fjárlögin, sem þetta ætti heima í, þá er auðvitað stöðugleikareglan farin algerlega, ég veit ekki hvert, auðvitað er hallinn meiri en gert er ráð fyrir í fjárlögunum.
Virðulegi forseti. Við erum hér að tala um fjáraukann. Það er áhugavert hvað ríkisstjórnin tekur við góðu búi. Ríkisstjórnin tekur við gríðarlega góðu búi. Það eru fáar ríkisstjórnir í þeim heimshluta sem við erum í sem taka við góðu búi. Það er bara mjög ánægjulegt að sjá að tekjurnar voru mun meiri en gert var ráð fyrir á þessu ári. Það segir manni að það er enn þá grátlegra þegar maður sér að ríkisstjórnin hafi ekki sett sér það markmið og unnið að því að ná hallalausum fjárlögum. Það er algjörlega grátlegt þar sem tekjuaukinn var meiri en sem nemur hallanum á þessu ári. Við þekkjum það líka og höfum fengið upplýsingar það í hv. fjárlaganefnd að skuldirnar eru lágar í alþjóðlegum samanburði og lánshæfismatið á íslenska ríkinu hefur aldrei verið betra hjá alþjóðlegum matsfyrirtækjum. Lífeyriskerfið okkar er, miðað við það sem maður sér varðandi svona samanburð, annaðhvort fremst í heimi eða kannski númer tvö á eftir því hollenska. Það léttir á ríkissjóði að hafa fjármagnað lífeyrissjóðakerfi. Ég vildi, virðulegi forseti, ekki vera í sporum þeirra þjóða sem eru með gegnumstreymiskerfi, lágan lífeyrisaldur og mikla öldrun þjóðarinnar. Það er bara staðan hjá mörgum þeim þjóðum sem eru nálægt okkur.
Miðað við upplýsingar Hagstofunnar hafa vanskil heimilanna aldrei verið lægri. Sömuleiðis fengum við upplýsingar um það í hv. fjárlaganefnd að skuldastaða íslenskra heimila væri best á Norðurlöndunum. Auðvitað er fullt af verkefnum fram undan. Það er alltaf þannig og það eru alltaf áskoranir en okkar áskoranir þegar kemur að ríkisfjármálunum eru mun minni en það sem gengur og gerist í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Ég tel mikilvægt að þessu sé haldið til haga vegna þess að mér finnst fyrir neðan allar hellur þegar stjórnarliðar koma hér upp, eins og gerist stundum — það er minna af því kannski út af því að við erum að benda á það — og vísa til hallareksturs ríkissjóðs undanfarin ár eins og menn hefðu einhvern veginn algerlega misst tökin á þessu og farið í halla á ríkissjóði. Þegar stjórnarliðar ganga fram með þeim hætti þá eru þeir að vonast til þess að fólk sé búið að gleyma því að við vorum í Covid, sem kallaði á gríðarlega mikil ríkisútgjöld. Það var alveg meðvitað og við erum alveg með opin augu varðandi það. Reyndar vildi hv. stjórnarandstaða fá meiri ríkisútgjöld en sem betur fer var ekki farin sú leið en það var gert til að halda hér gangandi þjóðfélaginu og atvinnulífinu. Sömuleiðis, úr því að það var ekki nóg að fá Covid eins og aðrar þjóðir þá fengum við á okkur Reykjaneselda. Það er erfitt að gera upp Covid-tímann, ætli það kosti ekki svona 300–500 milljarða. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hefur svör við þeim spurningum eftir fyrirspurnir sínar til hæstv. fjármálaráðherra. Ef ég man rétt þá er beinn kostnaður um 300 milljarðar, (NTF: 350 á fimm árum.) 350 á fimm árum en afleiddur kostnaður er auðvitað miklu meiri, þannig að það er örugglega lágmarkstalan. Síðan varstu með kostnaðinn af Reykjaneseldum, um 80 milljarða kr. og vonandi er það nú búið.
Síðan er ýmislegt annað sem hjálpar til núna. Þó að kostnaðurinn sé ekki búinn þegar kemur að hælisleitendamálunum og útlendingamálunum hefur alla vega sá kúfur verið tekinn af. Þetta voru náttúrlega gríðarlega háar fjárhæðir. Ég held að ég hafi séð einhvers staðar að beinn kostnaður sé um 25 milljarðar bara hjá ríkissjóði, og þá eru sveitarfélögin eftir, á einu ári og það er búið að taka þær niður.
Kyrrstaðan í orkumálum hefur verið rofin og ánægjulegt að sjá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á forsíðu Morgunblaðsins vera að vígja stækkunina í Svartsengi. Út af því sem gengið var í á síðasta kjörtímabili, einföldun regluverks, þá höfum við séð mjög mikið af stækkun virkjana hjá að ég tel öllum orkufyrirtækjunum, í það minnsta bæði hjá Landsvirkjun og HS orku. Ég veit ekki með Orkuveitu Reykjavíkur en ef ég man rétt þá held ég að hún hafi stækkað þetta líka og svo mætti lengi telja.
Ef ég tek þetta saman, virðulegur forseti, þá vil ég hvetja allan þingheim og sérstaklega hv. þingmenn í stjórnarliðinu til að kynna sér og setja sig vel inn í lögin um opinber fjármál og setja markið hátt þar. Fyrstu sporin hræða. Það sem hefur gengið á frá því ríkisstjórnin tók við er stórt skref aftur á bak í opinberum fjármálum. Ég hef áhyggjur af því að þetta muni halda áfram. Ég hef áhyggjur af því að þegar menn kynna — látum vera það sem á undan er gengið, látum vera laun og opinber fjármál, látum vera fjáraukann sem hér er, en það að menn ætli að samþykkja fjárlög með enga varasjóði og margt sem veldur manni áhyggjum þegar kemur að áætlunargerð í kringum fjárlögin þá eru menn, að manni sýnist, að fara að stíga skref sem væri enn þá meira skref aftur á bak í opinberum fjármálum. Hvað gerist ef menn ganga til baka í opinberu fjármálunum? Það mun skaða efnahagslífið því að það er gríðarlega mikilvægt að hafa traust og örugg ríkisfjármál, opinber fjármál, sem er besta leiðin til að auka hagsæld og tryggja stöðugleika. Þess vegna var farið í þessa vegferð. Það var svo sannarlega undir forystu Sjálfstæðisflokksins sem þetta var klárað en í góðu samstarfi við Framsóknarflokkinn á sínum tíma. Framsókn var þá með forsætisráðuneytið og formaður fjárlaganefndar var hv. þm. Vigdís Hauksdóttir sem var framsögumaður málsins en fjármálaráðherrann kom úr okkar röðum, þá hæstv. fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson, og þetta var ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. En það breytti því ekki að öll stjórnarandstaðan var með okkur í þessu. Það voru flokkar sem núna eru í ríkisstjórn og aðrir flokkar sem eru ekki til, ólíkir flokkar, allt annars staðar í hinu pólitíska litrófi en allir sammála um að þetta væri skref fram á við og menn vildu halda áfram að vinna að þessum málum. Ég mun ekki þreytast við að brýna hæstv. ríkisstjórn og hv. þingheim áfram í þessum efnum. Ég hef af þessu áhyggjur. Ég vona að það verði breyting á vinnubrögðunum en það er ekki undir okkur komið sem skrifuðum þetta nefndarálit sem ég vísaði í hér áðan. Við erum sameinaðir í þessu nefndaráliti, hv. stjórnarandstöðuþingmenn Njáll Trausti Friðbertsson, Stefán Vagn Stefánsson og Karl Gauti Hjaltason, og við munum halda þessum sjónarmiðum á lofti, virðulegi forseti, í fjárlaganefndinni og á þingi og annars staðar.