157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[18:24]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans framsögu og nota tækifærið og þakka bæði minni og meiri hluta fyrir ákaflega gott samstarf í nefndinni. Eins og hefur verið rætt í hv. fjárlaganefnd varðandi það hvernig þróunin hefur verið síðustu ár þegar kemur að fjáraukum og í rauninni frá því að lög um opinber fjármál tóku gildi árið 2015, bæði í okkar vinnu og líka eftir því sem maður hefur verið að garfa í fjáraukum síðustu ára, þá virðist þetta vera afskaplega matskennt þegar kemur að þeim þáttum og þeim útgjöldum sem falla undir fjáraukalögin eða lög um opinber fjármál. Er það ekki rétt skilið hjá mér, ef ég tek fyrsta snúning á þessu, hv. þingmaður, að það hafi verið rætt innan nefndarinnar að á þessu þurfi að gera breytingar og endurskoða en þessi háttur hefur verið hafður á síðastliðin ár og farið frekar versnandi en hitt, þannig að það sé ekki bara á herðum nýrrar ríkisstjórnar eða hv. fjárlaganefndar sem er að skila núna sínum fyrstu fjárlögum?