fjáraukalög IV 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir svarið. Annað sem hv. þingmanni hefur verið tíðrætt um eru lögbrot ríkisstjórnarinnar við framlagningu fjármálastefnu og síðan fjármálaáætlun. Í 4. gr. um lög um opinber fjármál kemur skýrt fram að ríkisstjórn skal, eftir að hún er mynduð, móta fjármálastefnu sem ráðherra leggur fram á Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar svo fljótt sem auðið er. Það er engin tímasetning eða dagsetning á þessu önnur en sú að hún komi eigi síðar fram en samhliða framlagningu næsta frumvarps til fjárlaga. Reyndar kemur fram í frumvarpinu um opinber fjármál, greinargerðinni með því, að fjármálaáætlun skuli byggð á samþykktri fjármálastefnu. Ef við tökum tímalínuna þá er fjármálastefnan lögð fram 25. mars, þing kom saman 4. febrúar, þá var þingsetning, þannig að hún er lögð fram um það bil sex vikum eftir að þing kom saman. Þann 31. mars var síðan fjármálaáætlunin lögð fram. Vissulega var hún byggð á framlagðri fjármálastefnu en ekki samþykktri, sem er í sjálfu sér ekki í lögunum en hægt að leita að þessari skýringu í frumvarpinu upprunalega. Það sem segir um framlagningu fjármálaáætlunar er að hún þarf að koma fram eigi síðar en 1. apríl ár hvert og er í rauninni dagsett öfugt við fjármálastefnuna. Hún kom þarna fram 31. mars. Í ljósi þess að árið 2016, 29. apríl, lagði ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks fram fjármálastefnu og fjármálaáætlun á sama deginum er spurning mín til hv. þingmanns: Eru fleiri fordæmi fyrir þessu hjá fyrri ríkisstjórn frá 2016?