157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[18:31]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það veldur mér svolitlum áhyggjum að heyra hvernig hv. þingmaður nálgast þetta. Ef menn ætla að fara í söguna þá er það ný ríkisstjórn sem á að koma með fjármálastefnu. Ríkisstjórnin sem var búin að samþykkja lögin var búin að starfa lengi og það var metnaðarmál að reyna að vinna eftir þessu þó svo að samkvæmt lögunum þyrfti hún ekki að gera það. Það þurfti ekki að koma fjármálastefna, hún var löngu komin, þ.e. ríkisstjórnin, það var búið að mynda hana, en þá fóru menn samt sem áður í þessa vegferð. Gengu í rauninni lengra en lögin kváðu á um og var alveg skýrt tekið fram að það væri ekki verið að gera þetta eins og ætti að gera í framhaldinu. En til þess að koma framfylgdinni á þá í raun sýndu menn meiri metnað með því að koma fram með þetta, eins og hv. þingmaður vísaði til, en snýr þessu við og segir: Bíddu, er þetta ekki fordæmi fyrir því að við höldum áfram að brjóta lögin? Fjármálaráð, og hv. þingmaður sat og stýrði fundi nefndarinnar, í umsögnum fjármálaráðs var bent á það að það ætti að klára fjármálastefnuna og ríkisstjórnin sagði: Við ætlum að koma með hana í febrúar. Ríkisstjórnin, ef ég man rétt, var stofnuð í desember — ég man ekki hvenær ég fór úr ráðuneytinu, hvort það var í byrjun desember eða í lok nóvember — en gerði það ekki. Í stað þess að segja: Heyrðu, þetta voru mistök og við ætlum nú að reyna að vinna úr þessu einhvern veginn og ef við komumst aftur í ríkisstjórn þá ætlum við að gera betur, þá er verið að reyna að finna fordæmi sem í rauninni sýnir hið gagnstæða, sýnir hvað það var mikill metnaður á þeim tíma því að þrátt fyrir að menn þyrftu ekki að koma með fjármálastefnu, vegna þess að ríkisstjórnin var löngu mynduð og þetta var í raun í ríkisstjórnarinnar sem kom þar á eftir að huga að, (Forseti hringir.) þá gerðu menn það samt vegna þess að það var metnaður. (Forseti hringir.) Ég vonast til þess, virðulegur forseti, að menn muni sýna meiri metnað því það skiptir máli fyrir þjóðina.