fjáraukalög IV 2025.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2025. Mig langar kannski aðeins í upphafi ræðu minnar að halda áfram þar sem orðaskiptum þeirra hv. þingmanna sem voru á undan mér, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og Ragnars Þórs Ingólfssonar, lauk. Það er mín skoðun og hefur verið lengi að við eigum að umgangast lög um opinber fjármál af virðingu. Það er alveg ljóst í mínum huga hvernig röðunin á að vera. Að sjálfsögðu er það fjármálastefna sem fjármálaáætlun byggist á og síðan eru það fjárlög og hvort eitthvað var gert með einhverjum hætti einhvern tíma, hvort sem það væri, þá eru það ekki fordæmi til að fara eftir. Við eigum náttúrlega að gera þetta eins vel og við getum og ég veit að hv. formaður fjárlaganefndar, Ragnar Þór Ingólfsson, hefur gert sitt hvað það varðar og ég treysti honum fullkomlega til að halda því áfram, þannig að ég vænti þess að á nýju ári komi ný fjármálastefna sem fjármálaáætlun muni síðan byggjast á og fjárlögin þar síðan. Mig langaði bara að segja það hér áður en ég færi lengra inn í umræðuna.
Mér finnst, virðulegur forseti — og það er á engan hallað í því og í raun og veru, sama hvort menn eru í stjórnarandstöðu eða stjórn — við vera allt of gjörn á það sem erum í þessum þingsal að reyna að finna eitthvað til að benda á það sem einhver gerði sem ekki var nægilega gott og réttlæta það síðan með því að gera eins. Fjárlögin eru grundvallarplagg í öllu og eru með þræði inn í allar nefndir þingsins. Ekkert er fjárlögum óviðkomandi og minn punktur í upphafi minnar ræðu er að við eigum að umgangast þau af mikilli virðingu og fara eftir þeim lögum sem um þau gilda.
En að þessu fjáraukalagafrumvarpi. Það er nú svo sem ekki kannski í sjálfu sér mikið um það að segja. Þetta er náttúrlega öðruvísi umræða hér um fjárauka en fjárlögin. Hér erum við að ræða um fjármagn sem er farið út og við erum að endurmeta árið hvað varðar tekjur og gjöld. Mér finnst reyndar áhugavert að ræða þennan fjárauka, sér í lagi bara vegna þess að við erum að ræða hér fjárauka við fjárlög sem sá sem hér stendur tók þátt í að búa til ásamt þáverandi hv. formanni fjárlaganefndar, Njáli Trausta Friðbertssyni, í starfsstjórn hér rétt fyrir kosningar í miklum flýti og miklum hamagangi en í mjög góðri sátt nefndarinnar. Það var ekkert augljóst á þeim tíma — og ég veit að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson getur staðfest það hér í hliðarsölum á eftir ef áhugi er fyrir því — að menn myndu ná þessu verkefni. Það var ekkert augljóst að menn myndu ná að klára þessi fjárlög, sem þessi fjárauki er síðan við, á tilsettum tíma. Það voru blikur á lofti um að sú ríkisstjórn sem síðan tók við hefði þurft að koma í desember og klára fjárlög. En sem betur fer, með góðri stýringu og góðri samstöðu í fjárlaganefnd tókst okkur að koma þessum fjárlögum í gegnum þingið, og ég verð bara að segja það, með nokkuð góðum hætti. Þessi vinna hefur elst vel. Það var minnst á það hér í dag í einhverri ræðunni að menn hefðu ekki farið í ræður í fjárlögum. Það er alveg rétt. Það var mjög sérstakt, enda voru þetta mjög sérstakir tímar. Það var ákveðið, í ljósi þess hve aðstæður voru skrýtnar, að álitaefnin yrðu leidd í jörðu inni í fjárlaganefnd vegna þess að menn áttuðu sig á því að ef þetta færi í miklar umræður í þingsal þá myndi það að líkindum ekki klárast örfáum dögum fyrir kosningar. Það tókst og afraksturinn er hér og við erum að gera fjórða viðauka ársins.
Það kom mér líka á óvart, virðulegur forseti — og ég hef sagt það hér oftar en einu sinni og oftar en tvisvar og ætla að segja það örugglega í þriðja skiptið eða oftar — að við skyldum ekki sjá í raun og veru fjárauka fyrr við þetta frumvarp, svona pólitískan fjárauka þar sem ný hæstv. ríkisstjórn væri að setja sín fingraför á fjárlagafrumvarpið, koma inn með sínar áherslur og breytingar. Ríkisstjórnin boðaði miklar breytingar eftir kosningar en í raun og veru voru fyrstu tveir fjáraukarnir sem við fengum ekki pólitískir. Það var ekki fyrr en síðasta sumar sem við fengum í raun og veru þriðja fjáraukann sem bar keim af því að vera pólitískur. Þessi fjárauki hér er hins vegar bara mjög tæknilegur, uppsóp, ef svo má kalla. Það er verið að taka saman hér þá liði sem hafa farið fram úr, þurft aukafjármagn til og verið að laga til í tekjum og gjöldum.
Það er lagt til að fjárheimildirnar aukist um 97,7 milljarða. Það eru nú skýringar á því, virðulegur forseti, eins og hefur nú komið fram. Þetta eru 43,5 milljarðar sem eru lífeyrisskuldbindingar og vaxtagjöld upp á tæplega 24 en tillögurnar til hækkunar í frumvarpinu sem ég leyfi mér í raun og veru að segja að við getum haft einhverja skoðun á eða einhver áhrif á eru upp á 30 milljarða. Það sem er náttúrlega athyglisvert líka í þessu er að þegar þú endurmetur árið, þegar afkomuhorfur ársins 2025 eru endurmetnar, þá er ljóst að sá halli sem gert var ráð fyrir upp á 63 milljarða í frumvarpinu er kominn niður í 38. Það er gleðilegt, virðulegur forseti, og því ber svo sannarlega að fagna, enda kom í ljós í haust að tekjurnar voru umtalsvert hærri en menn höfðu gert ráð fyrir á árinu 2025 þannig að hallinn í ár verður, eins og ég segi, um 38 milljarðar sem er bara ekki langt frá hallanum sem áætlaður er 2026. Ég held að hann sé 28 milljarðar, ef ég man rétt. Þannig að þetta er nú svona, ég segi nú kannski ekki á pari en allt að því að vera á pari, þannig að ég vil bara segja það hér og vera pínu stoltur af því að þessi fjárlög hafi virkað og árið sé að enda með þessu þó að við eigum auðvitað eftir að gera árið upp. Það geta komið og eiga eftir að koma einhverjar breytingar til viðbótar við þetta í uppgjöri sem við sjáum þá bara í ríkisreikningi þegar hann verður opinberaður, á næsta ári vonandi. Frumjöfnuðurinn er sömuleiðis að batna, sem skiptir gríðarlegu máli. Ég veit að ýmsir hv. þingmenn hafa haft horn í síðu umræðu um frumjöfnuð en frumjöfnuður er hins vegar mikilvæg tala og segir okkur heilmikið. Það að frumjöfnuður batni um 32,2 milljarða er bara mikill gæðastimpill á þetta frumvarp. Gjöldin eru sömuleiðis að aukast en þetta er svo sem allt í áætluninni.
Mig langar aðeins að ræða hér og vera á svipuðum nótum og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson var hér áðan varðandi varasjóðinn. Ég deili þeim áhyggjum sem hv. þingmaður hafði af varasjóðum. Varasjóðurinn er til af ástæðu. Þegar búið er að skera varasjóðinn svona niður í fjárlagafrumvarpinu eins og raun ber vitni, hann er kominn niður í sitt lögbundna lágmark, 1%, búið að taka varasjóðinn af öllum ráðuneytunum, þá er alveg ljóst að svigrúmið er afskaplega lítið. En það er, virðulegur forseti, umhugsunarvert og skoðunarinnar virði að heimildir varasjóðs og fjárauka eru orðaðar með nákvæmlega sama hætti, að þær séu ætlaðar fyrir ófyrirséð eða óvænt útgjöld ríkisins, þannig að í raun og veru þegar okkur vantar fjármagn vegna nýrra verkefna þá getum við valið hvort við förum í fjárauka eða í varasjóðinn. Það er ekki nógu mikil aðgreining þarna á milli. Það sem ég er að segja er að skilyrðin eru nánast þau sömu varðandi hvort við förum í fjárauka eða í varasjóðina. Ég held að þetta sé eitthvað sem við þurfum aðeins að skerpa á. Það er mín tilfinning að við þurfum aðeins að skerpa á þarna.
Ég skora á hv. formann fjárlaganefndar sem situr hér í salnum að hugsa það vel núna þegar við klárum þessa miklu törn sem er búin að vera í fjárlaganefnd við að koma þessum fjárlagatengdu verkefnum, fjárlögum, bandormum og öllu því sem því fylgir í gegnum þingið og það er svona aðeins að róast hjá nefndinni í janúar og febrúar og mars kannski, að skoða þetta verklag sem við höfum því miður, og sá sem hér stendur er ekkert undanþeginn því, látið líða hjá að sinna kannski af eins mikilli athygli og við hefðum átt að gera, sem er í raun og veru endurmat útgjalda, að fjárlaganefnd færi í raun og veru í þá vinnu að reyna aðeins að átta sig á því í raun og veru í hvað fjármagn fjárlaganna fer raunverulega, sem sagt endurmat þessara útgjalda. Ég held að það séu gríðarlega mikil tækifæri í því fyrir ríkissjóð. Ég er ekki á neinn hátt að segja að það séu einhverjir að misfara með fé eða það sé verið að fara illa með fé en ég held að það séu miklir möguleikar fyrir stjórnvöld að rýna í þetta endurmat með það að leiðarljósi að geta þá fært fjármagn á milli liða sem mögulega er ekki að nýtast að öllu leyti og vantar á hinn staðinn, að það sé hægt að færa þarna á milli. En þetta er heilmikil vinna, virðulegur forseti, og einhvern tíma var nú talað um að skipa undirnefnd fjárlaganefndar sem myndi hafa þetta markmið, að fara og endurmeta þessar heimildir allar saman. Ég gauka því hér að hv. formanni fjárlaganefndar að þetta held ég að sé eitthvað sem væri áhugavert.
Varðandi þessar 30 milljarða breytingartillögur sem hér eru taldar upp þá eru það nú nýsköpunar- og þekkingargeirarnir varðandi það að fella niður 3 milljarða heimild sem er í frumvarpinu vegna endurgreiðslu kvikmyndagerðar. Ég vil bara leggja áherslu á að þetta er gríðarlega mikilvægt verkefni. Þetta hefur reynst gríðarlega vel og það hefur verið gert mat á þessu, hvernig hver króna sem er lögð inn í þetta verkefni er að skila sér til baka til ríkisins og hún er margföld, þannig að þó að upphæðirnar í endurgreiðslunum virðist vera háar, og það hefur verið gagnrýnt að hér sé ekki einhvers konar lok á pottinum, þá er þetta mjög mikilvægt og er að skila okkur ávinningi þegar upp er staðið. En ég skil þessa tillögu vel.
Ég hef hins vegar spurningu varðandi lið 10.40 sem er stjórnsýsla dómsmálaráðuneytisins þar sem er gerð tillaga um 31,2 millj. kr. framlag til fjármögnunar íslensku kosningarannsóknarinnar vegna alþingiskosninga 2024. Ég ætla ekki að fara að gera veður út af þessum fjármunum hér, enda ekki miklir þótt þeir séu tvöföld stöðugleikaregla, sjáðu til. En talandi um hvaða verkefni eiga heima í fjárauka og ekki og talandi um að vera óvænt og ófyrirséð, þetta verkefni var inni á borði fjárlaganefndar við gerð síðustu fjárlaga í styrkbeiðni. Þeirri styrkbeiðni var svarað með ákveðnu — ég var að reyna að rifja upp, virðulegur forseti, hvað var veitt mikið fjármagn í þessa rannsókn. Það var veitt fjármagn í rannsóknina, þ.e. þingið var búið að taka ákvörðun um það hvað ætti að fara mikið fjármagn þarna inn, þannig að það var alveg ljóst og vitað að þessi rannsókn væri í gangi þannig að það stenst enga skoðun að þetta sé ófyrirséð eða óvíst. En ég veit það líka, virðulegur forseti, og ætla ekkert einhvern veginn að reyna að þvo hendur mínar af því, að oft hafa í gegnum tíðina í fjáraukum farið inn viðlíka greinar. En enn og aftur segi ég að við þurfum að umgangast þessi lög af virðingu og reyna að standa okkur eins vel og við getum. Þetta er nú svona frekar brýning heldur en einhverjar skammir og ég vona að hv. formaður fjárlaganefndar, sem ég margnefni hér í minni ræðu, enda hefur hann staðið sig afskaplega vel í stýringu og stjórnun nefndarinnar í vetur, taki því ekki þannig heldur bara sem brýningu um það hvernig við getum gert þetta betra til framtíðar litið.
Ég held, virðulegur forseti, að það sé svo sem ekkert mikið meira um þetta frumvarp að segja annað en að ég bara ítreka að ég er ánægður að sjá að þetta fjárlagafrumvarp, sem samið var undir mikilli pressu og mjög skrýtnum aðstæðum síðasta haust í starfsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hefur nú bara elst ágætlega og staðist vel tímans tönn. Ég held að við öll, og þá er ég að tala um alla fjárlaganefnd sem var starfandi fyrir síðustu alþingiskosningar, getum bara gengið nokkuð brött frá því verkefni. Eins og ég sagði áðan var mikil samstaða í nefndinni um að klára þetta og mikil sátt, annars hefði þetta aldrei gengið og aldrei verið hægt. Ég held að ég láti þetta verða lokaorðin um þetta frumvarp og hlakka bara til áframhaldandi samstarfs með félögum mínum í hv. fjárlaganefnd.