fjáraukalög IV 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans framsögu og hlý orð í minn garð og get alveg sagt að það er gagnkvæmt. Það var mjög verðmætt fyrir mig sem kom nýr inn á þing og fékk það krefjandi verkefni að stýra þessari mikilvægu nefnd, fjárlaganefnd, og þeim verkefnum sem við fengum strax í fangið, þ.e. fjármálastefnu, fjármálaáætlun, uppgjöri ÍL-sjóðs og fleiri verkefnum sem voru mjög krefjandi — það hjálpaði til að hafa þar fyrir reynslumikla þingmenn sem hafa starfað í nefndinni, bæði fyrrum formann, hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson, og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson. Einmitt út af þessari góðu vinnu er nefndin mjög samstiga um að skoða flest þau atriði sem hafa komið hér fram og koma fram í nefndarálitinu og er gagnrýnin. Það var ekki ætlun mín að benda á einhver fordæmi til þess að réttlæta einhver önnur, heldur fyrst og fremst að benda á það að í lögum um opinber fjármál, í 4. og 5. gr., eru ákvæðin nokkuð opin. Ég tel að þau séu það m.a. vegna þess að upp geta komið aðstæður eins og hjá hv. fjárlaganefnd á síðasta kjörtímabili sem lendir í því að boðað var til kosninga. Ég tek undir það að það hafi verið afrek (Forseti hringir.) að ná saman fjárlögum undir þeim kringumstæðum og sömuleiðis líka fyrir nýja ríkisstjórn við valdaskipti (Forseti hringir.) að ná að koma saman stefnunni (Forseti hringir.) og afgreiða hana og svo fjármálaáætlun. Ég er nú ekki beint með spurningu akkúrat núna.
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutímann.)