fjáraukalög IV 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ragnari Þór Ingólfssyni kærlega fyrir andsvarið. Það er gott að hann benti á það sjálfur í lokin að það var kannski ekki bein spurning í andsvarinu heldur meira svona vangaveltur. Það gleður mig að heyra, virðulegur forseti, að hv. formaður fjárlaganefndar sé tilbúinn að skoða það og fara í þessa vinnu, sem ég bara ítreka hér enn og aftur að er gríðarlega mikilvæg fyrir alla vinnu nefndarinnar, ekki bara hvað varðar fjárlög ársins 2027 heldur líka fjárlög framtíðarinnar, því við þekkjum það öll sem höfum verið inni í þessu kerfi að kerfið hefur tilhneigingu til að vaxa í einhvers konar sjálfstýringu. Við þurfum að vera mjög vel með á nótunum hvað það varðar að missa ekki tökin á því verkefni að vera með öflugt aðhald og reglulegt aðhald á því í hvað okkar fjármunir fara. Þetta er vissulega takmörkuð auðlind og við þurfum að vanda okkur í því hvernig við deilum henni niður. Það skiptir gríðarlegu máli og ég held að það séu miklir hagræðingarmöguleikar og tækifæri í því að grandskoða og endurskoða í raun og veru útgjöld ríkisins og endurmeta svolítið upp á nýtt hvar þörfin er og hvar hún er ekki.