fjáraukalög IV 2025.
Frú forseti. Ég ætla að vera á svipuðum nótum og ég var áðan, að halda áfram þessari brýningu fyrir nefndina alla sem ég held að öll nefndin geti tekið undir og sé sammála um að fara í, að skoða hvað við getum gert betur. Miðað við þann tíma sem við höfum unnið saman hefur þetta gengið ákaflega vel og ég held að öll nefndin sé sammála um það að þróun vinnu nefndarinnar hafi kannski ekki farið í rétta átt. Við tókum fyrstu skrefin í kringum vinnu við styrkveitingar þar sem við fórum í aðeins öðruvísi aðferðafræði við veitingu styrkja og komum þeirri vinnu með ákveðinni brýningu til ráðuneytanna um hvað megi fara betur þar líka. Ég hlakka mikið til þeirrar vinnu og samstarfsins áfram og þakka hv. nefndarmönnum og hv. þingmanni fyrir samstarfið sem fer vonandi senn að ljúka, alla vega fyrir jól, svo höldum við ótrauð áfram. Ég vil því bara nota tækifærið og þakka bæði hv. þingmanni og hv. minni hluta og meiri hluta fyrir góða og málefnalega vinnu.