157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[18:59]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Við ræðum hér fjáraukalög IV fyrir árið 2025. Guðlaugur Þór Þórðarson fór mjög vel yfir málin en það eru kannski bara nokkrir punktar sem ég vildi rétt koma inn á í þessari umræðu. Ef ég man þetta rétt þá eru lög um opinber fjármál tíu ára núna í lok þessa mánaðar. Þau voru samþykkt hér í þinginu alveg í lok árs 2015, ég held að það hafi verið alveg undir lok árs, milli jóla og nýárs, svona eftir minni. Þetta breytti töluvert miklu almennt í allri umræðu um fjármál ríkisins. Eitt meginmarkmiðið var að auka aga og formfestu í fjármálum ríkisins. Út á það gekk leikurinn svona í stuttu máli. Að mörgu leyti held ég að það hafi náðst mjög mikill árangur miðað við hvernig lýsingar eru af þessu fyrir lofið en alltaf má gera betur og ég reikna með að við höldum áfram að bæta úr.

Varðandi þau fjárlög sem hefur aðeins komið fram í þessari umræðu að voru samþykkt hér, held ég, 18. eða 19. nóvember í fyrra, ætli það hafi ekki verið 19., u.þ.b. 12 dögum fyrir kosningar, frú forseti, við alveg ótrúlegar aðstæður vegna þess að ætli það hafi ekki verið boðað til kosninga með fimm eða sex vikna fyrirvara þannig að fjárlaganefnd þess tíma, undir minnihlutastarfsstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar — þetta var mjög óvenjulegt ferli sem var farið í gegnum í vinnu fjárlaganefndar á þeim tíma og mikil lífsreynsla í sjálfu sér að hafa staðið í því þær vikur miðað við hvað þetta var sérstakt miðað við hvað við höfum séð. Það var kannski eitthvert eitt dæmi sem var talað um í lýðveldissögunni þar sem hefði verið unnið við fjárlög undir svipuðum aðstæðum og var gert hérna fyrir ári síðan. Þetta voru fáheyrðar aðstæður.

Eins og kom fram í máli hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar áðan þá var ekki meiri hluti í nefndinni á þeim tímapunkti þannig að það þurfti svolítið að vinna mikið og í góðri samvinnu. Auðvitað voru áhyggjur víða af því að þetta færi allt í handaskolum rétt fyrir kosningar og ekki eiginlegur meiri hluti í nefndinni. Það hefði getað orðið mjög freistandi pólitískt á þessum tímapunkti að fara út í einhverja vitleysu rétt fyrir kosningar.

Það sem þeim sem hér stendur finnst áhugavert núna þegar við erum farin að sjá fyrir endann á þessu ári — og hér erum við komin í fjárauka IV og svo bíður maður svolítið eftir því að sjá hvernig ríkisreikningurinn kemur út fyrir árið, þ.e. uppgjörið á árinu — er að ég held að miðað við allt og allt sé þetta að eldast mjög vel, öll þessi vinna sem var farið í fyrir ári síðan og hvernig þetta hefur þróast. Tekjur eru, eins og hefur kannski verið, töluvert meiri á þessu ári en var reiknað með, 73 milljarðar ef ég man rétt, sem er síðan áhugavert miðað við þann halla sem var settur inn upp á 62, sem hefur síðan aftur minnkað í 38 milljarða sem er að koma í ljós í þessum fjárauka IV, þessi eiginlegi halli. Það er ýmis einskiptiskostnaður í þessu sem kannski eru mjög háar tölur. Það eru náttúrlega þessar lífeyrisskuldbindingar vegna A-deildar LSR, Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, frá 2016, sem er verið aðeins að spýta inn í það, einskiptiskostnaður upp á 7,6 milljarða og síðan er það B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, 36 milljarðar. Samtals eru þetta 43,6 milljarðar, ef ég man rétt.

Síðan kemur þessi vaxtakostnaður, það er ÍL-sjóður, það var farið fyrr í ákveðna fjármögnun hjá ríkinu sem átti að fara í á næsta ári og þar fellur til aukinn vaxtakostnaður þannig að þessi hefðbundnu eiginlegu fjárlög eldast að mörgu leyti mjög vel og það er ekki allur munur á þeim og þeim fjárlögum sem er í sjálfu sér unnið að því að klára hér í þinginu fyrir jól. Það er svolítið fróðlegt að skoða þetta í þessu samhengi. Það verður líka fróðlegt að sjá hvernig þau þroskast og hvernig þeim reiðir af á næsta ári.

Við sem höfum setið lengi í fjárlaganefnd horfum oft mikið í frumjöfnuðinn, tökum vexti eða fjármagnsgjöld og tekjur frá og þá sjáum við líka mjög jákvæða þróun þar. Það verður líka að hafa í huga að eins og fjárlögin hafa verið að koma út og eru áætluð á næsta ári og þetta ár sem við erum að skoða hér í fjáraukanum, fjárauka IV, þá erum við í töluvert betri stöðu en mörg af nágrannaríkjunum og raunverulega hvað það hefur gengið vel að borga niður skuldir og gekk gríðarlega vel á árunum 2013–2019. Þá voru greiddar mjög hratt niður skuldir og skuldahlutfallið var komið í 22–23%, rétt um 20% þegar áföllin byrjuðu að ríða yfir; WOW air 2019, Covid 2020 og 2021, innrás Rússa í Úkraínu hafði mikil áhrif á fjármálalíf heimsins og verðbólgu víða um lönd sem m.a. kom hingað þegar þessar hefðbundnu virðiskeðjur í heimsviðskiptunum rofnuðu. Svo náttúrlega undir lokin þegar það ástand var farið að skána með þeirri verðbólguþróun þá riðu yfir jarðhræringar á Reykjanesskaga.

Beinn kostnaður af þessum áföllum á þessu fimm ára tímabili fyrir ríkissjóð er 350 milljarðar. Með veltutengdu og umsvifunum og þeim tekjumissi sem varð af því fyrir ríkissjóð má áætla að það hafi verið í kringum 600 milljarðar á þessu tímabili, 100–120 milljarðar á ári að meðaltali. Við gátum staðist þessa áraun vegna þeirrar góðu stöðu sem byggðist upp hjá ríkissjóði 2013–2019. Það voru líka góð ár að því leyti að verðbólga að meðaltali á þeim tíma var 2,4% á sama tíma og skuldir voru greiddar niður af miklum krafti þannig að það bjó til þessa krafta til að taka á móti þessum miklu efnahagsáföllum sem urðu á þessu tímabili, 2019–2024.

Hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson kom inn á það í sinni tölu áðan, vegna þess að hér voru samþykkt fjárlög 18. og 19. nóvember í fyrra, að það hefði mátt vænta þess að þegar ný ríkisstjórn tók við völdum 21. desember í fyrra þá kæmi fram pólitískur fjárauki þar sem stefnan væri svolítið mótuð og áherslurnar svona brýndar um hvert ætti að fara. Þarna kemur töluvert á óvart í sjálfu sér að það er fyrst og fremst í þessum fjórða fjárauka sem við ræðum hér sem einhver pólitík kemur fram. Hinir eru frekar hlutlausir í þessu samhengi.

Það var mikið látið með það um síðustu áramót hvað núverandi ríkisstjórn væri að taka við slæmu búi, sem eru náttúrlega bara ótrúlegar yfirlýsingar þegar við erum að skoða stöðuna og veruleikann eins og hann er og hefur verið og hvernig hann er að þróast. Núverandi ríkisstjórn tók nefnilega við mjög góðu búi. Reyndar held ég að sögubækurnar muni nú fara vel um það þegar við skoðum þau mál síðar.

Við sjáum líka þetta haustið, þegar varasjóðir voru teknir af málefnasviðunum af ráðuneytunum og farið með þá niður í lágmark, hvernig það mun eldast. Það verður áhugavert. Stöðugleikareglan er bara rétt á hnífsoddinum að standast og hvort þetta séu 15–20 milljónir sem hún stendur á í dag, þannig að það er verið að fullnýta hana með öllum mögulegum útgjöldum. Við þekkjum öll þessa útgjaldaaukningu sem er í frumvarpinu sem við erum að fara inn í, 143 milljarðar, sem er væntanlega bara ein sú mesta í 20 ár, 9% að raungildi, ef ég man rétt.

Hérna áðan var aðeins tekið dæmi í fjárauka og ég hef aðeins rætt í nefndinni þessa íslensku kosningarannsókn. Forsvarsmenn hennar sóttu til fjárlaganefndar í fyrrahaust, fyrir fjárlögin fyrir árið 2025, um styrk upp á rúmar 30 milljónir í íslensku kosningarannsóknina og fengu úthlutað frá nefndinni, að mig minnir, fimm milljónum. Það kemur töluvert á óvart að þetta sé komið inn í fjárauka, í fjórða fjárauka ársins, í einhverju uppsópi undir lok árs. Fjáraukinn á að vera fyrir ófyrirséð útgjöld og það er varla hægt að tala um íslensku kosningarannsóknina og þá umsókn sem fór inn í fjárlaganefnd fyrir rúmu ári síðan sem ófyrirséða. Ég held að það sé dæmi um það hvernig eigi ekki að standa að málum í þessum fjárauka. Það kom aðeins á óvart að sjá það inni í fjáraukanum.

Það verður áhugavert þegar ársreikningurinn eða ríkisreikningurinn verður gerður upp fyrir árið 2025 að sjá hvernig þessum fjárlögum reiðir af. Það hefur svo sem alltaf verið vinna að reyna að klára sem fyrst og flýta honum á árinu. En þetta lítur töluvert betur út heldur en þetta leit út kannski miðað við þær forsendur sem voru fyrir ári. Þessi fjárlög sem við erum að ræða hér voru kláruð hér í mjög sérstökum aðstæðum fyrir ári síðan. Eins og kom fram í máli hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar áðan þá var ekki mikil umræða í þingsal um þau fjárlög vegna þess að það var ekki tímarammi til þess að hún gæti almennilega farið fram, heldur voru málin raunverulega útkljáð í góðri sátt innan fjárlaganefndar og það var áhugaverð vinna að ná framgangi í þeirri vinnu á sínum tíma.

Frú forseti. Ég ætla að láta þetta duga að sinni og ég hef lokið máli mínu.