157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[19:35]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og ætla að byrja á að hrósa hv. þingmanni og nefndinni fyrir að falla frá þessum breytingum á lögum um erfðafjárskatt. Ég átti áhugavert samtal hér við hæstv. ráðherra þegar hann var að leggja þennan bandorm fram og átti mjög erfitt með að skilja hvernig ætti að framkvæma það sem þar var lagt til og það gleður mig að nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að það gengi illa upp. Reyndar myndi ég segja fyrir mitt leyti, virðulegur forseti, að ég held að þið þurfið ekkert að brýna ráðherrann í að taka þetta til ítarlegrar skoðunar. Ég held að við séum bara í ágætum málum. En það sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í er hvort aldrei hafi verið lagt til að hæstv. ráðherra kæmi með margumræddu vörugjöldin, sem hæstv. ráðherra sendi inn í einhverju minnisblaði til nefndarinnar, í þessum bandormi eða í sérlögum, því þessi bandormur er lagður fram 4. nóvember en minnisblaðið sem sent var nefndinni minnir mig á að sé dagsett 17. október, þannig að tíminn var nægur. Nú er ég að vísa í það til þess að það mál fengi efnislega þrjár umræður hér í þinginu.