skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Varðandi erfðafjárskattinn þá var það mat okkar að þessar breytingar þyrftu nánari skoðun og reyna að meta hvaða áhrif þetta hefði. Við fengum fjölmargar umsagnir um málið og í ljósi tímans vildum við gefa okkur meiri tíma til að skoða þetta betur og athuga hvaða áhrif þetta hefði.
Varðandi vörugjöldin og hvort það hafi komið til greina að setja þau inn í þennan bandorm þá kom það aldrei til umræðu, svo ég segi það bara hreinskilnislega. Það kom ekki til umræðu, þannig að það var bara ákveðið að halda sig við að gera þetta sem breytingu við fyrri bandorminn. En það verður bara að segja það að þær tillögur að breytingum fengu auðvitað viðamiklar umræður í nefndinni og við tókum á móti fjölmörgum gestum og hlustuðum á mjög margar umsagnir. Ég myndi því segja að þessar tillögur hafi fengið mjög umfangsmikla umræðu. Hefði verið mögulegt að setja vörugjöldin í þennan bandorm? Já, mögulega, en hitt er náttúrlega stóri bandormurinn og það hefur kannski verið mat ráðuneytisins að það væri betra að hafa þau þar inni.