157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[19:37]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Það er eitt að fá mikla umræðu í nefnd og í þingsal sem ég sé að stjórnarliðar eru að tala um, að atkvæðagreiðsla sem við vorum í hér áðan hafi tekið svo mikinn tíma, og annað að vanda til lagasetningar og fylgja hér lögum og reglum og að mál fari í þrjár umræður og að aðilar úti í bæ hafi tækifæri til að senda inn umsagnir um mál. Ég verð því bara að viðurkenna það, virðulegur forseti, að mér finnst mjög einkennilegt að engum hafi dottið það í hug og líka að lögfræðingar, bæði í ráðuneytinu og á þinginu, hafi ekki lagt það til við meiri hlutann að vörugjöldin kæmu fram í sérfrumvarpi nú eða í þessum bandormi.

En þá langar mig að spyrja hv. þingmann. Jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku er breytingartillaga frá nefndinni sem byggist á minnisblaði frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Það er ekkert um breytingar á þeim lögum í bandorminum sem hér liggur fyrir. Er það ekki rétt hjá mér hv. þingmaður? Og þá velti ég fyrir mér: Hefur einhver haft tækifæri til að tjá sig um þær breytingar sem hér eru eða innsendar umsagnir um þessa breytingu á jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku?