skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Svo ég endurómi um vörugjöldin, þá var þetta þannig að þær tillögur komu fram í lok október en þessi bandormur kom ekki fyrr en í nóvember, þannig að þessi tímalína hefur því kannski eitthvað um málið að segja. Varðandi jöfnunargjald raforku, þá er það mál sem kom fram í vor og það var full samstaða í nefndinni um að taka það mál inn. Nefndin lagði fram sameiginlega breytingartillögu einmitt um að dreifiveiturnar yrðu undanþegnar greiðslu þessa gjalds af því að dreifiveiturnar eru auðvitað á Seyðisfirði, í Vestmannaeyjum og á Ísafirði ásamt fleiri dreifbýlari stöðum, þannig að það var bara full samstaða í nefndinni. Við fengum þó umsögn frá Bændasamtökunum vegna þessa máls en það verður að segjast að þetta kom frekar seint inn. En þetta er gríðarlega mikilvægt landsbyggðarmál og ég sem formaður nefndarinnar lagði á það mikla áherslu að þetta kæmi hingað inn fyrir áramót svo að heimili í dreifbýli fengju að njóta þessarar niðurgreiðslu. Ég lagði á það mikla áherslu.