skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Það sem ég myndi kannski vilja spyrja út í er í rauninni hvað er ekki í þessum pakka. Ríkisstjórnin kynnti núna í haust það sem hún ætlaði að kynna í vor sem áttu að vera bráðaaðgerðir í húsnæðismálum sem voru síðan ekki bráðaaðgerðir en það var skattahækkun upp á 2,3 milljarða sem hv. þingmaður fór ágætlega yfir að færi inn í húsaleiguna. Svo voru einhverjir undarlegir hlutir í Úlfarsárdal sem eru búnir að fá mjög hörð viðbrögð en það er ekki vandamál hv. þingmanns. Svo var talað um séreignarleiðina, að menn ætluðu að hafa framhald á henni, enda hefur hún reynst einstaklega vel. Því var fagnað, eðlilega, enda hefur það reynst gríðarlega vel og var mjög jákvætt, en hvar er séreignarsparnaðarleiðin?