skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Ég áttaði mig á því að þetta væri ekki þarna inni og þess vegna er ég nú að spyrja: Hvar er hann? Ég veit ekki hvern annan ég á að spyrja. Ríkisstjórnin lofaði þessu núna í haust. Ég veit það ekki en ég held að við séum að verða búin með þingstörfin. Var þetta bara kosningaloforð fyrir kosningar? Ef ég skil þetta rétt þá verður engin séreignarsparnaðarleið á næsta ári og hv. þingmaður getur ekkert orðið önug, eða hún getur það alveg en þetta snýst ekkert um mig persónulega og það þýðir ekkert að verða önug þó að ég spyrji. (Gripið fram í.) Hvar er þetta? Þessu var lofað. Þessu var fagnað. Ég held að það sé ekki mjög mikið eftir af þinginu. Hvar er séreignarsparnaðarleiðin?