157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[19:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir andsvarið. Ég skil vel að hv. þingmaður sé spenntur yfir þessu og að hann sé farinn að bíða en ég er hér að svara fyrir það sem er komið til efnahags- og viðskiptanefndar. Það er ekki komið til hennar en þetta hlýtur að fara að koma af því að ég hef fulla trú á að þessi ríkisstjórn standi við það sem hún segir. Ég beini því til hv. þingmanns að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. (Gripið fram í.) Hann er ekki hér en ég er hér og ég hvet hv. þingmann til þess að spyrja hann í næstu óundirbúnu fyrirspurnum. Málið hefur ekki komið fram á þinginu. Ef það væri komið inn til efnahags- og viðskiptanefndar væri strax farið að vinna það mál hratt og vel. (Gripið fram í.)