157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[19:44]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir hennar framsögu í þessu máli. Það sem mig langar að spyrja um eru þessir nikótínskattar. Þeir hljóma kannski þess eðlis að auðvitað viljum við hækka skatta á einhverja óhollustu en það er algerlega ljóst og hefur margoft verið sýnt fram á það að þegar við skoðum það hverjir neyta nikótíns í heildina að meðaltali er það fólk í lægri tekjutíundunum. Það er fólk sem er jaðarsettara og það sést vel bara strax á unga aldri hverjir það eru sem leiðast frekar út í það að verða háðir nikótíni. Nikótínfíkn er gríðarlega sterk þannig að hér er verið að skattleggja lægstu tekjutíundirnar í gegnum þennan skatt, þvert gegn því sem ríkisstjórnin talar um og hvað þá hæstv. félagsmálaráðherra sem vill vernda þann hóp. Hvernig stendur á því að það sé farin þessi leið þegar fólk er í raun háð þessu efni, getur ekki verið án þess og þið skattleggið þetta í botn?