157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[19:45]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vissi ekki af því að það væri búið að greina nikótínnotkun eftir tekjutíundum. Það eru áhugaverðar upplýsingar. En ég þakka þingmanninum kærlega fyrir fyrirspurnina. Ég lít ekki á að þetta sé einhver aðför gegn tekjulægri hópum. Það hefur verið hefð fyrir því að skattleggja það sem er óhollt og við ættum kannski að gera meira af því að skattleggja það sem er óhollt. Persónulega, þótt það sé ekki hér, þá hef ég verið talsmaður þess að taka upp sykurskatt frekar. Ég veit ekki af hverju þessar hugrenningar þingmannsins um að við séum að skattleggja tekjulágu sérstaklega eru en hér er aðallega verið að samræma tollalög milli fólks sem hér býr og hvaða magn það má taka til landsins og þeirra ferðamanna sem hingað koma. Það er verið að samræma milli laga. Það er eiginlega tilgangurinn með þeim breytingum sem hér eru gerðar. Þetta er ekki aðför gegn tekjulágum sérstaklega. Það er verið að samræma.