157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[19:46]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Forseti. Þá hefur fæðst nýtt orð yfir skattahækkanir, að samræma. Þannig er það nú bara víst. Þetta eru ekki hugrenningar hjá mér í þessu, þetta eru staðreyndir. Það er ágætt að kynna sér málin áður en menn setja fram skattahækkanir og vita í rauninni ekkert út af hverju nema bara til að herma eftir einhverju öðru. Þetta er mjög óábyrgt. Ég velti líka fyrir mér hvernig árátta það er í þessu frumvarpi að í rauninni brennimerkja menn. Ef menn hafa einhvern tímann brotið af sér þá eiga þeir ekki afturkvæmt, þrátt fyrir að þeir hafi greitt skuld sína við samfélagið og sýnt fram á afburðahegðun árum saman geta þeir ekki farið í stjórnir og geta ekki verið að höndla með ákveðin mál. Hvers vegna geta menn ekki greitt sína skuld við samfélagið og tekið að fullu þátt í samfélaginu? Ríkisstjórnin staðfestir það að menn verði annars flokks þegnar fyrir það eitt að hafa einhvern tímann brotið af sér.