skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Þetta var hið áhugaverðasta andsvar þar sem ég er sökuð um að hafa ekki vit á hlutunum. Mér finnst þetta ekki alveg í lagi, hv. þm. Jón Pétur Zimsen. Ég vil þá spyrja hv. þingmann á móti hvort hann hafi ekki lesið nefndarálit meiri hlutans í hv. efnahags- og viðskiptanefnd um þetta mál af því að það segir hér að við skoðuðum hæfisskilyrðin sérstaklega og erum að hvetja ráðuneytið til að taka þau upp af því að þetta kom við okkur og við ræddum þetta ítarlega. Við erum að beina því til ráðuneytisins að endurskoða þetta. Ég hvet hv. þingmann, áður en hann sakar mig um að kunna ekki og vita ekki, til að lesa álitið og það sem í því stendur áður en hann fer fram með svona vitleysu eins og hann gerir hér úr þessum ræðustól. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)