skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Hér ræðum við aftur og enn meira skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Svokallaður bandormur tvö eða mál nr. 257 er til umræðu og ég mæli hér fyrir nefndaráliti 1. minni hluta. Það frumvarp sem hér um ræðir kom mjög seint inn til þingsins og er allt annað en það sem fór í samráðsgátt, sem er afar óheppilegt, sérstaklega gagnvart þeim hagsmunaaðilum sem telja sig búna að koma á framfæri nauðsynlegum athugasemdum. Við 1. umræðu var frumvarpið um tvöfalt stærra en það sem birtist í samráðsgátt. Meiri hlutinn í efnahags- og viðskiptanefnd ákveður engu að síður að keyra í gegn í ágreiningi óvenjustuttan umsagnarfrest eða einungis átta daga og það í jafn viðamiklu frumvarpi og hér um ræðir. Niðurstaðan er því fyrirsjáanleg, margar lagabreytingatillögurnar þurfa nánari skoðun og aðrar munu óbreyttar ekki ná tilætluðum árangri. Á þessu haustþingi hafa vikur og mánuðir liðið og lítið komið inn af stjórnarfrumvörpum. Því hefði verið heppilegt að nýta betur tímann, fá svona stórt frumvarp fyrr til meðferðar svo það þyrfti ekki að vinna það í tímaþröng eins og nú er raunin.
Fyrsti minni hluti leggur til nokkrar breytingartillögur við þetta frumvarp og verða þær raktar hér á eftir. Ég ætla að byrja á að koma inn á frítekjumark barna yngri en 16 ára. Lagt er til að hækka árlegt frítekjumark barna yngri en 16 ára. Það er breyting til góða enda hefur upphæðin verið óbreytt frá 2013. Hún fer úr 15 þús. á mánuði í 25 þús. á mánuði en það þarf að ganga lengra til að jafnræðis sé gætt, til að mynda geta 15 ára börn sem eru að þjálfa eða taka að sér önnur launuð verkefni verið í þeirri stöðu að borga hærri skatta en 16 ára börn sem fá jafn mikil laun. Því leggur 1. minni hluti til að skoðað verði milli umræðna að börn yngri en 16 ára verði ekki verr sett en börn 16 ára og eldri.
Það gæti verið gert með því að upphæð frítekjumarks á ári yrði sama upphæð og persónuafsláttur á ári. Eins og fram kemur í frumvarpinu hefur hækkun á frítekjumarki barna undir 16 ára lítil fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög og ríkissjóð. Ef ég man rétt þá held ég að það séu 18 millj. kr. á ríkið og 12 milljónir á sveitarfélögin. Það myndi fara lækkandi þótt við myndum hækka þetta aðeins því það eru ekki það mörg börn sem um ræðir en þetta skiptir verulega miklu máli fyrir þau börn sem eru 15 ára og yngri og eru að vinna. 1. minni hluti leggur því til að upphæðin verði endurmetin milli umræðna. Það kann að vera að ráðherra vilji til að mynda nota skattkerfið til að draga úr hvata barna á skólaskyldualdri til að vinna en ekkert slíkt kemur fram í greinargerð né aðrar ástæður þess efnis af hverju ekki er gengið lengra svo að sanngirni sé gætt. Breytingin sem 1. minni hluti leggur til er að það verði skoðað milli 2. og 3. umræðu að í stað fjárhæðarinnar 180.000 kr. komi 824.292 kr. sem er það sama og persónuafsláttur á einu ári.
Svo kemur hérna skattahækkun, hækkun tekjuskatts af leigutekjum einstaklinga. Í frumvarpinu er lagt til að tekjuskattur af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði hækki og fari úr 50% tekjuskatti í 75%. Verði frumvarpið að lögum mun virk skattbyrði leigutekna þar með hækka úr 11% í 16,5%. Að mati 1. minni hluta er þessi skattahækkunartillaga ekki hugsuð til enda. Það liggur fyrir að einstaklingar búa við allt aðra lagaumgjörð en fyrirtæki sem leigja út eignir. Einstaklingar mega til að mynda ekki nýta gjöld á móti leigutekjum. Því var farin sú leið að lækka skatt á einstaklinga til að reyna að jafna stöðuna. Það er meginástæða þess að einstaklingar borga lægri fjármagnstekjuskatt af útleigu á íbúðum en nú á að skekkja stöðuna á ný. Um er að ræða að hámarki útleigu á tveimur íbúðum eins og lögin eru í dag.
Tilgangurinn með frumvarpinu er sagður vera sá að beina einstaklingum í aðrar fjárfestingar en fjárfestingar í fasteignum. En hverjir eru það sem leigja út íbúð á eigin kennitölu? Það hefur ekki verið greint nægjanlega vel af stjórnvöldum. Umsagnaraðilar benda hins vegar á að leiða megi að því líkur að það séu fyrst og fremst einstaklingar sem leigja tímabundið út eigin íbúð, leigja út aukaíbúð í eigin húsnæði eða kaupa aukaíbúð á höfuðborgarsvæðinu til að styðja t.d. börn sín í námi. Þetta eru því þeir aðilar sem skattahækkunin bitnar verst á, auk leigjenda sem fá yfir sig hækkaða leigu eða missa heimili sitt ef tilgangur ríkisstjórnarinnar þess efnis að fækka þeim sem fjárfesta í íbúðum verður að veruleika. Aðrir geta auðveldlega fært eignir sínar í félög og þeir sem leigja út fleiri en tvær eignir falla nú þegar í þann hóp sem borgar fullan fjármagnstekjuskatt. Það segir sig eiginlega sjálft að flestir þeirra sem leigja út fasteignir í stórum stíl eru nú þegar með eignir í félögum og því hefur þessi skattahækkun ekki áhrif á þá aðila. Umsagnaraðilar hafa einnig vakið athygli á því að útreikningar bendi til þess að leiguverð hækki og að áhrif skattahækkunarinnar á vísitölu neysluverðs hafi ekki verið metin að fullu. Eins og Samtök verslunar og þjónustu bentu á í sinni umsögn er leiguverð lykilmælikvarði í verðbólgu, sem hefur áhrif á vaxtastig og verðtryggða fjármögnun. Þannig er um að ræða enn eitt skattahækkunarfrumvarpið þar sem ólíklegt má telja að áætlaðar tekjur standist en neikvæð áhrif breytingarinnar gætu orðið talsverð. Í ljósi framangreinds leggur 1. minni hluti til að undið verði ofan af boðaðri skattahækkun og leggur til breytingartillögu þess efnis.
Svo var kafli hér, 11. og 12. gr. frumvarpsins, um breytingu á lögum um erfðafjárskatt. Minni hlutinn hefur barist fyrir því að 11. og 12. gr., er varða breytingu á lögum um erfðafjárskatt, verði felldar brott. Um er að ræða breytingar sem leiða til verulegrar hækkunar á erfðafjárskatti, yrðu þær samþykktar.
Ekki var lögð til hærri skattprósenta í frumvarpinu heldur flókin og torskilin leið til að hækka skattinn án þess að segja það berum orðum. Niðurstaðan hefði orðið brot á meginreglum skatta- og félagaréttar, ómöguleiki og óskýr skattheimta. Breytingin snýr að mestu að því hvernig eignir skuli verðmetnar. Eins og breytingarnar eru settar upp ríma þær á engan hátt við önnur lög og reglur um verðmat eigna. Kynslóðaskipti bújarða yrðu erfiðari og dýrari með tilheyrandi afleiðingum. Uppgjör dánarbúa yrði mun flóknara og í sumum tilfellum verður ógerningur að framfylgja lögunum ef þau fara í gegn óbreytt. Þar að auki yrðu verulega íþyngjandi kröfur lagðar á herðar þeim sem njóta arfs. Því fagnar minni hlutinn tillögu meiri hlutans þess efnis að 11. og 12. gr. falli brott. Hins vegar veldur það áhyggjum að þau leggja til að þetta verði skoðað nánar. Það veldur áhyggjum og í því sambandi langar mig að taka eitt dæmi, þau eru mörg, um hvaða áhrif þetta hefur, fyrir utan óskýrleikann. Frumvarpið leggur til að til að mynda minnihlutaeigandi í félagi — gefum okkur að þú sért aðili sem erfir 5% í félagi. Þá er þessi 5% aðili að óska eftir verðmati inni í félagi í bókum sem hann hefur engan aðgang að þannig að þetta er alger ómöguleiki fyrir þennan aðila. Niðurstaðan væri sú að ef hann hins vegar gæti fengið þetta nýja verðmat væri mat á virði félagsins allt annað hjá þeim sem á 5% en þeim sem á 95%, svo galið er það. Þetta segir sig sjálft, þetta er verulega vanhugsað. Báðar greinarnar og allar undirgreinar voru verulega gallaðar þannig að ég vona að við sjáum þetta aldrei aftur hérna í þingsal því að það er sátt um kerfið í dag og alger óþarfi að breyta.
Svo kemur kafli um blandaðar tollvörugeymslur. Ríkisstjórnin sem sagðist ætla að einfalda regluverk er að fara í þveröfuga átt og leggur til auknar kröfur og meira eftirlit, meira íþyngjandi eftirlit. Í þessum kafla er það þannig að einstaklingar sem hafa hlotið dóm vegna brota á tollalögum eða fyrir fíkniefnabrot eiga samkvæmt þessari tillögu engan rétt á að endurheimta borgaraleg réttindi sín þrátt fyrir að hafa tekið út refsingu og ekki brotið af sér í ákveðinn árafjölda. Það sem um ræðir er að þeir sem sækjast eftir að sitja í stjórn eða vera í stjórnendateymi tollfrjálsra verslana, þrátt fyrir að hafa mögulega fyrir áratugum tekið út sinn dóm og byggt upp sitt líf og unnið sig upp í stjórnendastöðu, verður engu að síður um alla sína ókomnu framtíð bannað að sinna þeim störfum. Hér áðan þegar hv. þm. Jón Pétur Zimsen var í andsvörum við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur þá var þetta aðeins rætt. Þá vil ég vekja athygli á því að það að það hafi verið hafðar áhyggjur af þessu og ráðherra bent á þetta finnst mér ekki nóg. Ef nefndin var ósátt þá átti nefndin auðvitað að breyta þessu. Ef hún er ósátt þá þarf ekkert að fá leyfi hjá ráðherra. Það er það sem ég er ósátt við í þessu vegna þess að í fjölda tilfella þá fær fólk borgaraleg réttindi sín eftir að hafa tekið út refsingu og verið kannski án þess að hafa brotið af sér í fimm ár. En í einstaka lagabálkum er það ekki svo.
Mig langar að taka hliðardúr frá þessu nefndaráliti til að benda á það að ég hef verið að vinna að þingsályktunartillögu þess efnis að allir eigi rétt á sínum borgaralegu réttindum á ný, fyrir utan auðvitað alger jaðartilvik eins og fólk getur ímyndað sér, kannski þegar um einhverja misnotkun gegn börnum er að ræða og annað slíkt, að einstaklingar eigi alltaf að geta bætt ráð sitt. Það rímar við að þegar hér var afnumin uppreist æru þá var það skýrt að það átti að gerast. Það átti að afnema þessar eilífðarhindranir fyrir fólk, að geta ekki fengið borgaraleg réttindi aftur. Því finnst mér þetta fara gegn því sem var ákveðið þar, að stíga ekki skrefin alls staðar sem við sjáum þau. Nú hef ég unnið og fengið hjálp við það að vinna hvar í kerfinu þetta hangir enn þá inni, að fólk fái ekki borgaraleg réttindi. Það er á allt of mörgum stöðum og ég vona að þingið taki vel í það að breyta þessu heilt yfir. Ég fagna þess vegna kannski þeirri tillögu meiri hlutans að þau vilji skoða þetta.
Vissulega má telja ólíklegt að þessi staða komi oft upp, að einhver sem hefur hlotið dóm, fyrir fíkniefnalagabrot til að mynda, sækist eftir að vinna hjá tollfrjálsum verslunum en það gæti alveg komið upp. Þetta er nefnilega hluti af stærra samhengi, hvort við viljum að einstaklingum verði gert kleift að bæta ráð sitt, hvort það eigi ekki að vera hvatar í kerfinu svo fólk geti bætt ráð sitt og fengið sín borgaralegu réttindi aftur. Nú er borið fyrir sig að það sé nokkuð algengt í lögum. Þá væri kannski nær að afnema slíka íþyngjandi lagabálka í stað þess að halda áfram að skerða eðlileg borgaraleg réttindi þeirra sem hafa tekið út sína refsingu. Þess ber einnig að geta að í flestum tilfellum öðlast einstaklingur aftur borgaraleg réttindi sín eftir að afplánun lýkur ásamt tilgreindum árafjölda þar sem viðkomandi brýtur ekki af sér.
Skýringar meiri hlutans á því að gera ekki breytingar eru m.a. þær að í umfjöllun um skilyrðið í greinargerð með frumvarpi því sem varð að tollalögum kemur fram að handhafar starfsleyfis séu vörsluhafar ótollafgreiddra vara og beri ríkar skyldur samkvæmt ákvæðum frumvarpsins, þannig að með þessu eru þau eiginlega að taka undir þessi sjónarmið. Þess vegna, af því að við berum ríkar skyldur, þá eiga þau ekki að öðlast borgaraleg réttindi sín á ný. Því felist í skilyrðinu eðlileg krafa til stjórnenda tollvörugeymslna sem annast mikilvægt hlutverk í rekstri sínum og er tilgangur hennar sá að standa vörð um tekjur ríkissjóðs og vernda þar með hagsmuni samfélagsins og almennings, með því að fólk fái aldrei borgaraleg réttindi sín aftur. Er það í alvöru það sem við viljum?
Fyrsti minni hluti telur að gæta þurfi meðalhófs og fara frekar í þá átt, eins og er víðast hvar að finna í lögum, að einstaklingar eigi möguleika á að öðlast borgaraleg réttindi sín á ný. Tilgangur afplánunar á Íslandi er að stórum hluta betrun. Að lokinni afplánun, auk kröfu um nokkur ár án afbrota, hlýtur að vera eðlileg krafa samfélagsins að ef okkur verður á sé möguleiki til að bæta ráð okkar og verða betri manneskjur. Viljum við lifa í samfélagi sem refsar ungu fólki sem kemst í kast við lögin um ókomna framtíð? Er það samfélag sem við viljum búa í? Þó að ungt fólk snúi til betri vegar og bæti ráð sitt þá mun það aldrei duga til. Samfélagið ætlar að halda áfram að stimpla það sem glæpamenn það sem eftir er. Eru það skilaboðin sem við viljum senda ungum einstaklingum sem hafa stigið feilspor? Væri ekki nær að efla hvata til að halda sér á réttri braut? Í 15. gr. frumvarpsins er fjallað um breytingu á tollalögum þar sem settar verða meira íþyngjandi kvaðir á þá sem selja úr tollfrjálsri verslun. Þá gæti þetta orðið flókið fyrir minni aðila á markaðnum. Einnig eru þrengd skilyrði um stjórnendur og stjórnarmenn sömu fyrirtækja, eins og hér var komið inn á, þrengd skilyrði um hverjir fá að starfa sem stjórnarmenn eða stjórnendur.
Að framangreindu sögðu, því sem ég er búin að fara yfir, leggur 1. minni hluti til breytingartillögu þess efnis að þessar kvaðir verði ekki, heldur rími þær við fjölmarga lagabálka þar sem fólk öðlast borgaraleg réttindi sín aftur eftir að hafa tekið út refsingu og ekki brotið af sér í ákveðið mörg ár. Mig langar í þessu samhengi að benda líka á að það vantar ekki að þetta sé íþyngjandi, lögin í kringum tollvörugeymslur, og ég ætla að renna hratt yfir. T.d. segir í 8. tölul.:
„Leyfishafi skal hafa á að skipa starfsfólki sem hefur fullnægjandi þekkingu á lögum og reglum um meðferð ótollafgreiddra vara. Sýnt skal fram á að skjalagerð vegna tollmeðferðar, stjórnun, innra eftirlit, bókhald og varsla gagna starfseminnar verði með traustum hætti.“
Þetta er bara eitt af fjölmörgum skilyrðum fyrir utan þetta með stjórn og stjórnendur þannig að það er ansi langt seilst að ætlast til þess að útiloka ákveðinn hóp í þjóðfélaginu frá því að geta starfað í frjálsri tollverslun.
Svo kemur hérna skattfrádráttur vegna hlutabréfakaupa. Þar styður 1. minni hluti breytingartillögu meiri hlutans þess efnis að framlengja skattfrádrátt vegna hlutabréfakaupa um þrjú ár í stað tveggja. Fyrsti hluti beinir því þó til ríkisstjórnarinnar að auka fyrirsjáanleika þegar kemur að lagaumgjörð í kringum nýsköpun. Auka þyrfti fyrirsjáanleika víða þegar kemur að lagasetningu en þegar um er að ræða nýsköpun mætti gera mikið betur. Því hefði meiri hlutinn mátt ganga lengra þegar kom að framlengingu þess úrræðis.
Svo eru það verndarráðstafanir. Þar held ég að meiri hlutinn leggi til breytingar en alla vega, það liggur fyrir að fjárveitingavaldið og breytingar á sköttum, gjöldum og tollum á heima hjá Alþingi en ekki hjá einstaka ráðherrum. Það leikur vafi á því hvort tillagan eins og hún er sett fram í frumvarpinu standist stjórnarskrána. Hvort sem umsagnaraðilar voru hlynntir eða ekki hlynntir auknum heimildum ráðherra mátti heyra samstöðu um að vanda betur til verka svo að ákvarðanir ráðherra stæðust og ekki væri vafi um hvort ákvörðunin stæðist stjórnarskrána. Ramma þyrfti betur inn heimildir ráðherra og ef ákvörðun ráðherra hefði t.d. fjárhagsleg áhrif umfram það sem Alþingi samþykkti ár hvert þyrfti aðkoma Alþingis að koma til, enda ef um brýnt stórt mál væri að ræða gæti forseti Alþingis hæglega sett málið fremst á dagskrá. Efnahags- og viðskiptanefnd hefur fengið minnisblað frá fjármálaráðuneytinu en 1. minni hluti telur að það þurfi að skoða þennan þátt betur áður en umræddar breytingar verða að lögum. Það væri kannski hægt að gera það milli 2. og 3. umræðu.
Svo varðandi jöfnun raforkukostnaðar sem er líka í þessum svokallaða bandormi tvö. Þar eru stigin skref við jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, skref sem 1. minni hluti styður. Skrefin eru hins vegar ansi lítil í samanburði við allar þær skattahækkanir sem dunið hafa á landsbyggðinni af þessari ríkisstjórn og nú síðast fyrir nokkrum klukkutímum þar sem bandormur eitt var samþykktur með ótal nýjum skattahækkunum. Einnig hefði verið gott að sjá langtímaplan ríkisstjórnarinnar þegar kemur að dreifingu raforku um Ísland, Íslandi öllu til heilla. Það hefði stuðlað að fyrirsjáanleika, eins og svo oft er kallað, og gefið hugmynd um hvert planið sé.
Svo kemur hérna bráðabirgðaákvæði búvörulaga, svokallaður EE-liður. Árið 2021 unnu Bændasamtökin og Félag atvinnurekenda sameiginlega tillögu. Fyrsti minni hluti tekur undir umsögn Bændasamtakanna þess efnis að ekki þurfi að framlengja bráðabirgðaákvæði tollfrelsis er varðar 7. tölul. 1. mgr. bráðabirgðaákvæðis EE-liðar, sbr. 21. gr. frumvarpsins. Þar undir eru m.a. kartöflur. Í umsögn Bændasamtakanna kemur eftirfarandi fram:
„Með ákvæði 21. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir eins árs framlengingu á gildistíma ákvæðis EE-liðar til bráðabirgða í búvörulögunum“ — til bráðabirgða, það er svolítið lykilatriði í þessu — „þannig að það gildi út árið 2026. Í ákvæðinu er kveðið á um tímabil sem afmarkar lægri innflutningstolla á tilteknar tegundir grænmetis.
Ákvæðið var upphaflega sett á fyrir tilstilli tillögu Bændasamtakanna og Félags atvinnurekenda árið 2021 og var ætlað að tryggja nægjanlegt framboð á tilteknum vörum til hagsbóta fyrir neytendur og koma í veg fyrir skortstöðu. Enn fremur er með ákvæðinu dregið úr líkum á tímabundnum verðhækkunum vegna álagningar tolla í þeim tilvikum þegar innlent vöruframboð er ekki nægjanlegt. [...]
Samkvæmt upplýsingum frá framleiðendum og markaðsaðilum er uppskeran hjá flestum kartöflubændum í ár með allra besta móti, bæði hvað varðar magn og gæði. Birgðastaðan er þannig að nægilegt framboð er tryggt fram á næsta sumar án þess að grípa þurfi til innflutnings eða sértækra undanþága frá tollum. Þeir tollar sem lagðir eru á kartöflur eru mjög lágir en þeir tollar sem lagðir eru á samkvæmt tvíhliða samningi Íslands við Evrópusambandið (ESB-tollar), eru 60 kr. á hvert kíló (magntollur) en enginn verðtollur (prósentutollur) er lagður á kartöflur. Óþörf framlenging á þessari undanþágu frá greiðslu tolla gæti haft neikvæð áhrif á afkomu innlendra kartöflubænda með því að halda eftirspurn eftir innflutningi opinni án raunverulegrar þarfar.“
Í meðförum þingsins kom fram að þetta gæti ekki bara haft neikvæð áhrif heldur muni þetta að öllum líkindum drepa stærstu kartöflubændur á Íslandi. Það er staðan af því að við ætlum að framlengja bráðabirgðaákvæði. Þetta er lagt til í frumvarpinu. Þessu erum við algerlega ósammála. Það er alger óþarfi, þegar staðan er orðin allt önnur, að framlengja þetta ákvæði. Því leggur 1. minni hluti til breytingartillögu þess efnis að þetta bráðabirgðaákvæði fái bara að renna sitt skeið.
Nú hef ég farið yfir, í stórum dráttum, nefndarálit 1. minni hluta. Mig langar bara að ítreka, nú eru hér nokkrir þingmenn meiri hlutans, að hér erum við að ræða enn eitt skattahækkunarmálið, að það væri mjög heppilegt ef einhver kæmi hérna í andsvör og gæti kannski jafnframt útskýrt af hverju þeir ætla að svíkja loforðið um að hækka ekki skatta. Það var loforð sem þessir ríkisstjórnarflokkar gáfu sem nú sitja í ríkisstjórn, alla vega tveir þeirra, að þeir ætluðu ekki að hækka skatta. En svo virðist vera að alveg sama hvaða mál við ræðum í efnahags- og viðskiptanefnd, þá er það skattahækkunarmál. Ég held að við séum löngu komin yfir það að fólk sé að trúa því að þetta snúist um einhverjar leiðréttingar og lokun á glufum o.s.frv. Það getur enginn haldið því fram að kílómetragjald og vörugjöld séu ekki skattar á almenning. Það er, held ég, bara ógerlegt þó að hæstv. ráðherra, Inga Sæland, hafi komið með einhvers konar útskýringu áðan sem stóðst auðvitað enga skoðun. Ég vil því bara beina því til meiri hlutans að þó að við séum komin í 2. umræðu þá er enn þá hægt að vinda ofan af hlutum eins og hækkun á leigutekjum sem er búið að sýna fram á að muni ekki skila sér. Það væri líka áhugavert ef einhver er ósammála þeirri fullyrðingu að heyra það frá meiri hlutanum, ef hann heldur virkilega að þetta muni ekki leiða til hækkunar á leiguverði. Þá væri mjög áhugavert að heyra þær skýringar. Það er enn ein greinin í þessum frumvörpum ríkisstjórnarinnar þar sem tilgangurinn er einn og markmiðið er eitt en það er búið að sýna fram á að það er ekki að nást og yfirleitt eru einhvern veginn öfug áhrif. Það skiptir samt engu máli hvað ríkisstjórnarflokkarnir heyra, þeir bara breyta ekki. Það skiptir engu máli.
Þá er gott að minna aftur á það sem gerðist hér í sumar þegar beitt var 71. gr. þingskapalaga þess efnis að stöðva umræðu. Hvað gerðist? Alveg eins og við sögðum. Þetta snýst ekki bara um það mál sem var undir þar, þetta snýr að því að það er búið að taka út allan hvata fyrir meiri hlutann til að vinna mál vel, koma með mál þannig að það sé hægt að klára þau almennilega. Og hvað gerist? Það er alveg sama hvað meirihlutaþingmenn heyra, þeir eru bara eins og aparnir, þeir vilja ekki heyra, þeir sjá ekki, ekkert. Eiginlega er það rétt sem mér er bent á hér úr sal, þeir taka fyrir munninn líka af því að þeir tala ekki mikið fyrir öllum þessum skattahækkunum. Þeir eru ekki mikið að koma upp og tala fyrir þeim. Þess vegna er þetta alveg ótrúlegt og ég velti stundum fyrir mér: Ætli það sé bara enginn á þingflokksfundum hjá stjórnarmeirihlutanum eða á þessum sameiginlegu þingflokksfundum sem segir: Það er nú svolítið leiðinlegt að svíkja kosningaloforðin. Ég vildi vera fluga á vegg og hugsa bara: Er engum sem dettur í hug að segja: Mig langar ekki að svíkja það sem ég sagði við kjósendur. Getum við ekki bara dregið aðeins úr útgjöldum? Væri það ekki nær?
143 milljarðar í útgjaldaaukningu, hátt í 30 milljarða skattahækkanir. Af hverju að fara þessa leið og svíkja öll kosningaloforðin? Ég er verulega forvitin um hvernig hv. þingmenn meiri hlutans réttlæta þetta fyrir sér og hvort þeir eru bara að taka samtal við kjósendur með sömu blekkingu og þeir eru að reyna að taka hér, að eitthvað sé bara leiðrétting, verið að loka einhverjum glufum, kílómetragjald, nei, venjulegt fólk, þetta er bara venjulegt fólk. Bíddu, venjulegt fólk? Þetta bitnar allt á venjulegu fólki. Það er ekkert öðruvísi fólk á Íslandi heldur en venjulegt fólk. Þetta bitnar alltaf allt á neytendum á endanum. Ég veit ekki hvort það er skýringin, að ríkisstjórnin, þessi vinstri stjórn, líti svo á, eins og mér heyrðist að hæstv. ráðherra, Inga Sæland, segði hér áðan, að hún vildi bara tilgreina tekjulægstu hópana sem venjulegt fólk, svo sagði hún reyndar þegar ég gekk á hana að allir væru venjulegt fólk. Þá er það komið fram, allir eru venjulegt fólk en þeir lofuðu að hækka ekki skatta á venjulegt fólk. Samt er verið að hækka skatta. Þetta er forvitnilegt þannig að ég bara hvet aftur meirihlutaþingmenn til að koma upp og útskýra af hverju þeir fara í þessa vegferð, því það er ekkert mál. Þótt þú takir meira að segja tillit til verðlagsbreytinga þá er samt verið að hækka útgjöld um yfir 90 milljarða. Af hverju ekki að gera það sem fólkið treysti ykkur til? Þið voruð kosin út á það að hækka ekki skatta. Þið ætluðuð að taka til og þið sögðust hafa plan. Planið er augljóslega enn ekki komið í framkvæmd. Vaxtalækkanir koma ekki til af góðu, eins og Seðlabankinn hefur minnst á, þannig að bæði loforðin eru svikin, þau hækka ekki skatta og taka ekki til.
Það eru fáar ríkisstjórnir sem ég man eftir sem hafa haft jafn sterkt umboð frá þjóðinni til að taka til og hækka ekki skatta. Venjulega er krafa um að auka útgjöld. Þessi ríkisstjórn er með þjóðina á bak við sig til að taka til en hún ákvað samt að gera það ekki. Það er bara mjög undarlegt, og að ákveða það eftir síðustu ríkisstjórn sem var þó alla vega að eiga við Covid, að það sé einhvers konar nýtt gólf í útgjöldum. Það er auðvitað ekki alveg eðlilegt. Við áttum okkur á hvað við erum að tala um. Það er verið að bæta líka, það átti líka að draga úr skuldum. Þau gerðu það með því að selja Íslandsbanka sem þau gátu auðvitað gert út af ríkisstjórn sem var hér 2013–2015. Þá kom bankinn í eigu ríkisins. Þá var hægt að selja hann en þegar þau þurfa að taka sínar ákvarðanir, hvað gera þau þá? Auka við skuldir. Það er aukið við skuldir á næsta ári. Það er ekki verið að draga úr. Nei, þetta á allt að gerast í framtíðinni, frú forseti. Í framtíðinni á að bora, í framtíðinni á að draga úr skuldum. Það eiga næstu ríkisstjórnir fyrst og fremst að gera. Vissulega er eitthvað hérna sem á að byrja á en við eigum nú eftir að sjá það. Nóg höfum við heyrt um skóflustungur, minna um eitthvað framhald en bara skóflustungurnar. En hér lýk ég máli mínu um þennan bandorm, skattorm, eins og við höfum minnst á og kem aftur í ræðu síðar.