157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[20:19]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í frítekjumark barna sem hún fjallar ágætlega um og er með í sínu nefndaráliti og leggur til að það verði skoðað að börn yngri en 16 ára verði ekki verr sett en börn 16 ára og eldri. Nú er það svo að ungt fólk sem er að vinna á þessum aldri og er í fyrsta sinn að kynnast íslensku skattkerfi — maður heyrir mjög oft að þegar fólk fær fyrsta launaseðilinn sinn fái það algjört áfall. Það skilur ekkert í því, eftir að það er búið að vinna fyrsta mánuðinn sinn, hvað það fær lítið og hve oft er mikið dregið af því. Ég vil því beina þessari spurningu til hv. þingmanns: Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á því að allir einstaklingar undir 18 ára aldri njóti skattfrelsis? Gæti það verið hvati fyrir ungt fólk á þessum aldri, sérstaklega kannski frá því að grunnskóla lýkur, til að vinna og gæti þetta ekki verið góður hvati fyrir ungt fólk til að safna sér peningum og vinna nokkuð mikið? Hefur hv. þingmaður skoðað þennan möguleika, að á meðan börn eru börn njóti þau fulls skattfrelsis?