157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[20:22]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir mjög áhugaverðar hugmyndir. Ég hef ekki skoðað þetta en er svolítið spennt fyrir hugmyndinni, alla vega að setja inn þessa hvata, hvort sem það væru börn í námi, sem er auðvitað ein leið, eða að hafa skattfrelsi fyrsta árið eftir barneign. Það er kannski tími í lífi fólks sem það þarf virkilega á slíku að halda, fyrst eftir að það lýkur háskólanámi. Ég held að það mætti klárlega skoða þessar hugmyndir áfram. Ég hef ekki skoðað þetta en þetta hefur verið gert nokkrum sinnum í nokkrum löndum, að hafa svona skattfrjálst ár, og ég held að það hafi í öllum tilfellum verið jákvæð áhrif sem af því hafi orðið, þannig að ég bara styð þetta.