skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Mig langar að beina tveimur spurningum til hv. þingmanns. Fyrst varðandi þessar blönduðu tollvörugeymslur þar sem þeir sem sækjast eftir að sitja í stjórn eða vera í stjórnendateymi tollfrjálsra verslana sem hafa einhvern tímann brotið af sér og tekið út sinn dóm — að þeim verði ekki bannað að sinna slíkum störfum. En hér er þetta bann lagt við því og ég spyr hvort hv. þingmaður telji að þetta standist einfaldlega stjórnarskrá. Mig langar sömuleiðis að spyrja hv. þingmann, þar sem ríkisstjórnin er hér að boða hærri tekjuskatt af leigutekjum einstaklinga, hvort hv. þingmaður telji að þessi afskiptasemi hins opinbera leiði til þess að íbúðum á markaði muni raunverulega fjölga.