skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Ég skal ekki segja hvort þetta standist stjórnarskrá en það hlýtur eiginlega að vera því að þetta er víða í lögum núna, að fólk fær aldrei borgaraleg réttindi sín aftur. Hins vegar lá alveg fyrir að það var ekki hugmyndin þegar uppreisn æru var afnumin, þannig að þetta er eitthvað sem ég held að við þurfum klárlega að skoða og taka út þar sem þetta er enn þá inni. Varðandi leigutekjur einstaklinga — nei, ég held að við verðum verr sett eftir þetta, ef þetta verður að lögum, því að þetta bitnar illa á leigjendum og þetta bitnar illa á þeim sem eru að reyna að leigja út sína eigin eign eða aukaeign í íbúð. Það eina sem þetta gerir fyrir það fólk er að það fær hærri skatta og það getur ekki farið með eignirnar sínar í félög. Þú ferð ekki með þína eigin eign í félag.