157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[20:26]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir góða ræðu. Það er margt sem ég myndi vilja ræða við hv. þingmann. Það fyrsta er kannski skattastefna ríkisstjórnarinnar. Hér erum við að ræða bandorm II sem er skattafrumvarp. Ég kom áðan í atkvæðaskýringu og velti því upp hvort sú leið sem ríkisstjórnin fer, þ.e. að taka ákveðna hópa út, byrja á einhverjum hópum, fjórum til fimm fjölskyldum á Ísland, eins og byrjunin var — það endar síðan á þeim sem eru minni máttar á þeim enda vegna þess að stóru aðilarnir bjarga sér venjulega en fiskverkakonan og aðrir sem eru lægra í þeirri keðju tapa frekar vinnunni. Við getum líka talað um ferðaþjónustuna og fleiri kerfi; ég spyr hvort þetta sé vænlegt til að stækka þjóðarkökuna. Það er fyrsta spurning.

Seinni spurningin tengist svolítið því sem hv. formaður Sjálfstæðisflokksins nefndi áðan. Þegar maður les greinargerðina með frumvarpinu kemur fram að þeir sem eru handhafar starfsleyfis, vörsluhafar ótollafgreiddra vara, beri ríkari skyldur samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Tilgangurinn er að standa vörð um tekjur ríkissjóðs og vernda hagsmuni samfélagsins og almennings. Má ekki lesa það þannig að hér sé verið að vara við að einhverjir sem mögulega hafa einhvern tímann fengið dóm eða eitthvað slíkt fái ekki uppreisn æru eða séu hreinsaðir eða brennimerktir til lífstíðar, það voru orðin sem ég notaði áðan? Mér var bent á að lesa frumvarpið aftur sem ég renndi í gegnum. Ég hlýði hér fólki sem er í nefndum sem ég er ekki í. Má ekki túlka þetta svona? Spurningin er sem sagt með brennimerkinguna og svo hvort skattahækkanirnar muni stækka þjóðarkökuna.