157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[20:28]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Frú forseti. Því er auðsvarað. Þessar skattahækkanir munu klárlega ekki stækka þjóðarkökuna. Til dæmis bara í sumar þegar hér voru sett á veiðigjöld, þá var varað við öllu. Varað var við stöðunni í greininni eins og hún var. Það var varað við því að þetta myndi ekki bitna á fjórum til fimm fjölskyldum, eins og hæstv. félagsmálaráðherra sagði, eða 15 fjölskyldum eins og hæstv. forsætisráðherra sagði. Það eru ekki þær sem fara illa út úr þessu. Það eru aðrir sem fara miklu verr út úr þessu og það er að fara að sýna sig núna. Þetta var ekki rétti tímapunkturinn til að fara í svona óúthugsaðar framkvæmdir því að allir voru tilbúnir að skoða það að hækka veiðigjöld en gera það skynsamlega. Þetta var keyrt í gegn þrátt fyrir að allir annmarkarnir lægju fyrir þannig að það mun ekki stækka kökuna frekar en skattahækkanirnar sem hér um ræðir.

Ég er alveg sammála því sem hv. þm. Jón Pétur Zimsen sagði áðan varðandi það að vera brennimerktur fyrir lífstíð og þegar sagt er að hagsmunir almennings og samfélagsins séu að þessir aðilar geti ekki unnið við ákveðin störf þá eru það auðvitað fordómar í garð þeirra sem hafa hlotið dóm og fordómarnir eru þess eðlis að þeir geti ekki bætt ráð sitt. Það sem verra er er að það verður að vera hvati í kerfinu til þess að þeir sem eru á slæmum stað sjái: Bíddu, ef ég sný við blaðinu þá get ég fengið mín borgaralegu réttindi aftur. En eftir því sem við samþykkjum meira af svona lögum þá minnkar hvatinn fyrir fólk til að snúa við blaðinu. Líka er um að ræða fíknibrot; því miður eru bara ansi margir sem hafa lent í því en sem betur fer hafa margir líka snúið við blaðinu.