skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir gott svar við mínu andsvari. Mín seinni spurning snýr að hækkun skatts á leigutekjur. Fyrir mér er það alveg ljóst að þegar þú skattleggur leigutekjur þá mun það hafa veruleg áhrif á leiguverð, það mun hækka. Hér ætlar ríkisstjórnin með handafli að reyna að koma íbúðum út á markaðinn. Ég spyr hv. þingmann hvort það sé vænlegt til árangurs og hvaða leiðir væru eðlilegri í stað þess að handstýra eignarhaldi á eigum. Þetta eru eigur sem fólk á. Þetta eru bara eins og hverjir aðrir fjármunir, reyndar húsnæði. Hvaða leiðir væru betur til þess fallnar að fjölga íbúðum á markaði í stað þess að reyna að handþvinga þær út af markaði með ofurskattlagningu á leigutekjur?