157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[20:31]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég held að það sé einfalt svar. Það þarf að brjóta meira land og það ættu að vera hæg heimatökin hjá þessari ríkisstjórn að hringja yfir í Ráðhúsið í sinn flokk sem er með borgarstjórann. Samfylkingin er með borgarstjórann í Reykjavík og þau vita hvað þarf að gera en þau fara svona leiðir í stað þess að brjóta meira land og taka á of íþyngjandi regluverki þegar kemur að byggingu húsnæðis. Það var t.d. frábært myndband sem Samtök iðnaðarins bjuggu til þess efnis, ég hvet fólk til að skoða það. Það sýnir í hvaða vegferð við erum komin, við flækjum og flækjum hlutina og þessi hugmynd er enn eitt flækjustigið. Hvað erum við að gera? Láta þetta bitna á einhverju aumingjans fólki sem er að reyna að leigja út sínar eigin eignir. Það eina sem þetta mun gera er að hækka leiguverð og hækka skatta á það fólk.