157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[20:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og varaformanni efnahags- og viðskiptanefndar, Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, fyrir ágætisræðu á köflum. Það er auðvitað alveg augljóst að hún missti af umræðunni um fyrsta bandorminn af því að stór hluti hennar ræðu var um hann. En það voru margir góðir sprettir í hennar fyrri ræðu um bandorm II. Ég ætla að halda mig svolítið við hann af því að hann er hér til umræðu. Það var einmitt hún, og ég vil fá að hrósa hv. þingmanni fyrir það, sem vakti athygli okkar á þessum hæfisskilyrðum og það var fyrir tilstilli hennar að við vildum láta skoða þetta. Ég vil því benda á að það var að hennar frumkvæði sem við ákváðum að skoða þetta og það þarf að gera það. Þess vegna beinum við því til ráðherra í okkar nefndaráliti að þetta þurfi að skoða því að skilyrðið hefur verið óbreytt frá því að tollalög voru sett á. Það er því svo sannarlega kominn tími til þess og við tökum undir þau sjónarmið þingmannsins, svo það sé algerlega sagt, og ég vona að það skiljist ekki öðruvísi í okkar nefndaráliti. Það er svo sannarlega það sem átt er við.

En mig langar að spyrja hana að einu. Ég veit ekki hvort mér hafi hreinlega misheyrst þegar hún sagði í ræðu sinni áðan að við værum að gera út af við kartöfluframleiðslu með því að breyta ekki bráðabirgðaákvæðinu sem er í lögunum núna. Það er bráðabirgðaákvæði en í einn mánuð á ári, í júnímánuði, eru lægri tollar á kartöflur. Það er bara vegna þess að þá er það yfirleitt þannig að íslenska framleiðslan er búin og það er ekki farið að taka upp nýja og þá eru aðeins lægri tollar á erlendum kartöflum. Við erum ekkert að hrófla við þessu og það var góð uppskera í sumar. Hún var mjög góð. Við fengum náttúrlega sérlega gott sumar nema kannski við sem þurftum að dvelja hér inni og gátum ekki notið sumarsins eins og aðrir, en allt í góðu með það. En mig langar að spyrja hv. þingmann: Heyrði ég rétt, telur hún að við séum að gera út af við kartöfluframleiðslu með því að hafa þetta óbreytt?