157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[20:35]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir hlý orð. Meiri hlutinn vill raunverulega skoða þetta og það er gott að það kemur fram í nefndarálitinu að það hafi alla vega verið tekið tillit til þess og þetta verði skoðað. Þó að ég hafi hnýtt í það að mér fyndist áfram ýjað að því að um væri að ræða annars flokks borgara er það kannski bara eitthvert orðalagsatriði sem við getum eftir áramót unnið okkur í að verða sammála um.

Varðandi það að stór hluti minnar ræðu hafi verið um bandorm I þá verð ég aðeins að fá að mótmæla því vegna þess að stór hluti var ekki um neitt ákveðið í bandormi I annað en það að benda á skattahækkanirnar sem við samþykktum hér í dag í bandormi I og að þessar skattahækkanir í bandormi II koma í ofanálag við allar aðrar skattahækkanir sem hér er verið að koma á.

Varðandi bráðabirgðaákvæðið í búvörulögunum, já, ég er mjög ósátt við það. Þetta snýst ekki bara um einn mánuð. Þetta snýr að því að þetta var bráðabirgðaákvæði á sínum tíma. Það voru ástæður fyrir þessu ákvæði og það er eðlilegt að það fari út núna því að það á ekki lengur við. Og að það gangi af kartöflubændum dauðum — fyrir nefndinni komu alla vega fram miklar áhyggjur af því. Ég vona að svo verði klárlega ekki en ég hef áhyggjur miðað við það sem ég kom inn á um að uppskeran er góð; hún hefur verið með allra besta móti og þetta er óþarfi núna. Þess vegna er alger óþarfi að vera að framlengja eitthvað sem var bara til bráðabirgða.