157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[20:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það þarf kannski að skoða þessar verndarráðstafanir í aðeins stærra samhengi og ég tel að við þurfum að gera það. Ég er nú frekar jákvæð og bjartsýn kona og ætla bara að vera á hrósvagninum í kvöld, og ég var mjög ánægð að heyra hv. þingmann vera ánægðan með þá tillögu sem við erum að leggja fram um jöfnun kostnaðar á dreifingu raforku. Ég held að það skipti gríðarlega miklu máli fyrir dreifbýlið að við reynum að jafna þetta sem mest. Auðvitað erum við ekki að ná fram fullri jöfnun og ég vona að Miðflokkurinn standi með okkur í þessu. Það var eiginlega seinni spurningin af því að ég var svo ánægð með að fá liðsinni Miðflokksins, hef ekki haft það í dag eins og komið hefur fram hér. Það hefur bara verið frekar langt á milli okkar í allan dag, en hér sé ég sameiginlegan flöt og þess vegna vil ég taka hann sérstaklega upp og spyrja hvort við megum ekki búast við liðsinni Miðflokksins þegar við förum af stað með það verkefni að ná fram fullri jöfnun á raforku.