skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Jú, það er vissulega gott að við getum verið sammála um ýmislegt. Þá verð ég að nefna það líka að við náðum saman um að erfðafjárskatturinn færi út sem var mjög ánægjulegt. Varðandi jöfnun á dreifingu raforku, jú, ég held að við séum alveg á sömu línu þar. Ef ég man rétt þá kostar það okkur á höfuðborgarsvæðinu um 48 kr. á mánuði en verður til lækkunar fyrir fólk á landsbyggðinni um 500 kr. þannig að það eru svolítið góð hlutföll til að vinna áfram með og ég bara fagna því ef við tökum þetta áfram eftir áramót.