157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[20:39]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Í þessari ræðu er ég að mæla fyrir breytingartillögu við þetta frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl. Breytingartillagan gengur út á það að á undan 38. gr. komi nýr kafli, XIII. kafli, Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með einni nýrri grein, svohljóðandi:

„Í stað „60%“ í 1. málsl. 1. mgr. 42. gr. A laganna kemur: 100%.“

Þetta er bráðabirgðaákvæði sem var sett í lögin árið 2021. Þar var kveðið á um að þrátt fyrir fyrirmælin í 1. mgr. 42. gr. A skuli endurgreiðsluhlutfall þeirra lögaðila sem ákvæðið tekur til vera 100%. Það var heilmikið átak á sínum tíma og mikill áhugi fyrir þessu hjá almannaheillafélögum landsins að fá þetta ákvæði inn. Þetta snýr að því að endurgreiðsluhlutfall almannaheillafélaga af virðisaukavinnu, ef þau eru að byggja húsnæði undir eigin starfsemi, fáist að fullu endurgreitt. Það var haft sólarlagsákvæði á þessu til fjögurra ára og ég held að það séu hreinlega mistök, virðulegur forseti, að það sé ekki verið að endurnýja þetta. Athygli mín var vakin á þessu fyrir nokkrum dögum. Þá var nefndin búin að ljúka sinni vinnu þannig að ég ákvað að setja bara saman breytingartillögu sem ég er alveg sannfærður um að þingheimur eigi að geta sameinast um. Ég þekki auðvitað vel til starfsemi björgunarsveitanna. Þar hefur þetta skipt alveg gríðarlega miklu máli. Nokkrar sveitir eru til að mynda að huga núna að framkvæmdum við húsnæði á næsta ári. Það er nú í tilefni af því sem ég fæ ábendingu um þetta. Þetta á við miklu fleiri almannaheillafélög.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það, virðulegur forseti, hvað almannaheillafélög í raun og veru eru okkur mikilvæg í okkar stóra landi með okkar fámennu þjóð, hvað þau sinna gríðarlega mikilvægum verkefnum og það þrátt fyrir að hafa í mörgum tilfellum mjög takmarkaðan stuðning frá hinu opinbera og þurfa í mörgum tilfellum svo sem ekki sérstaklega á því að halda í öðru en í einhvers konar skattaívilnunum af sínu starfi. Almenningur í landinu styður mjög almennt við almannaheillafélög með einum eða öðrum hætti, oft með fjárframlögum. Auðvitað er fjöldinn allur sem vinnur sjálfboðaliðastörf og eru kannski þeir sem færa það mest. En síðan er bara mjög víðtækur stuðningur almennings við hin ýmsu félagasamtök í landinu. Til að mynda get ég sagt að ég held að það séu um 30.000 manns sem greiða í hverjum mánuði einhverja upphæð til björgunarsveitanna, til Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Það munar virkilega um það í rekstri þess. Það skilar sér síðan allt út til þessara 100 björgunarsveita og slysavarnadeilda sem telja einhverja tugi, unglingadeilda, um allt land.

Það eru fordæmi fyrir alls konar öðrum skattaívilnunum fyrir almannaheillafélög. Svo ég vitni áfram í björgunarsveitirnar þá er til að mynda niðurfelling á vörugjöldum og slíku af alls konar farartækjum og búnaði til sveitanna, endurgreiðsla á þeim tollum og gjöldum sem eru lögð á. Það er ákveðinn grunnur. Síðan hefur ríkið með myndarlegum hætti, og gerir það núna, komið inn í stærri verkefni eins og endurnýjun björgunarbáta félagsins, sem er fjárfesting upp á í kringum 4 milljarða og á einhverju árabili er ríkið búið að taka þátt í því að greiða þetta niður um helming. Það var grunnurinn að því að hægt væri að fara í verkefnið. Á móti þarf að safna fé fyrir hinu og það hefur gengið alveg þokkalega þó að það sé auðvitað handleggur að ná saman svo stórum upphæðum en félagið hefur aldrei farið í stærri fjárfestingar í sinni sögu sem er síðan 1929.

Ég legg þetta hérna fram, virðulegur forseti. Ég er svo sem ekki að óska eftir því að nefndin komi saman út af þessari breytingartillögu milli 2. og 3. umræðu. Það hefur verið viðtekin venja hér í þingsal þegar kemur að málefnum sem snerta starfsemi þessara félaga að þá hefur verið um það víðtækur pólitískur stuðningur og samstaða. Þetta er jú það sem við í þinginu getum gert til þess að greiða leið þessara samtaka til að sinna því mikilvæga starfi sem þeim er falið og þau hafa tekið að sér. Þegar félög eru að koma sér upp húsnæði undir sína starfsemi, sem er auðvitað oft á tíðum og oftast grundvöllurinn að starfseminni, þá hjálpar þetta virkilega mikið, þannig að þetta er lagt fram með von um, virðulegur forseti, að um það verði víðtæk samstaða hér í þingsal við afgreiðslu málsins.