157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[20:45]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Hér erum við að ræða bandorm II sem er skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Hér er ýmislegt sem er aðfinnsluvert og vonandi að fólk sem er heima að horfa átti sig á því. Ég skal reyna að tala þannig og útskýra þannig að fólk átti sig á því hvað í þessu felst og hver stefna ríkisstjórnarinnar í skattamálum er. Já, ég er að útskýra fyrir fólki. Ég heyrði úti í sal að það er einhvern veginn gert lítið úr því að hér séu menn með tæknilegt mál úr frumvörpum og meirihlutaþingmenn gera lítið úr því að menn reyni að útskýra fyrir venjulegu fólki það sem hér fer fram. Alla vega var það þannig hjá mér, þegar ég var ekki þingmaður og hlustaði á umræður um fjárlög og bandorma, að ég náði því ekki alltaf sem fór fram þar og það voru þeir þingmenn sem voru skýrastir í öllu sínu sem voru áheyrilegastir.

Hér er t.d. aðferð ríkisstjórnarinnar: Við sjáum að hún byrjar á því að skattleggja sjávarútveginn þar sem þar voru málaðar upp eða skrímslavæddar nokkrar fjölskyldur sem áttu að vera að arðræna þjóðina. Það var keyrt í botn og svo var kjarnorkuákvæðinu beitt á skattafrumvarp sem var sérstaklega sérstakt. Þetta féll samt í kramið hjá fólki og það var vel gert, það var taktískt hjá ríkisstjórninni að gera þetta þannig en síðan hefur bara hvert skattamálið á fætur öðru komið þar sem afmarkaðir hópar eru sigtaðir út og ráðist að þeim og þeir skallaðir. Á meðan fólk finnur það ekki beint á sjálfu sér fyrr en allt í einu kemur að hópnum sem það er í þá er það jafnvel tilbúið til að samþykkja það: Já, þessi hefur það svo gott að hann getur borgað meira. Bílaleigur og ferðaþjónusta liggja núna vel við höggi, í þessum bandormi II er það fólk sem leigir út íbúðir. Auðvitað er því fólki kennt um skort á íbúðum hér í höfuðborginni en rót vandans er ekki skoðuð. Auðvitað er rót vandans fullkomlega ljós. Hér er búin að vera sú stefna í höfuðborginni að þétta byggð og koma niður háum húsum á hvern einasta græna blett í borginni. Það eru íbúðir sem fólk vill síðan ekki kaupa, eru rándýrar og eru jafnvel ekki með bílastæðum. Þá finnur ríkisstjórnin upp leið sem er að finna í bandormi II. Ég ætla að lesa hér um tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar, hvers vegna nauðsynlegt er að hækka skatta á leigutekjur verulega, með leyfi forseta:

„Lækkun frítekjumarks fjármagnstekjuskatts af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði úr 50%“ — sem sagt, menn voru með frítt upp í 50% — „í 25% er hluti af húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var 29. október 2025 og er liður í því að draga úr skattalegum hvata einstaklinga til að beina sparnaði í íbúðarhúsnæði umfram aðrar fjárfestingar og jafnframt að stuðla að auknu hlutleysi í skattlagningu leigutekna.“

Hér er með öðrum orðum verið að segja að verið sé að gera íbúðarhúsnæði óaðlaðandi sem fjárfestingarkost. Það má alveg vera pólitísk sýn ríkisstjórnarinnar en það mun örugglega fækka íbúðum á leigumarkaði og hækka leiguverð. Hvort þær íbúðir sem fara af leigumarkaði fara í sölu er allsendis óvíst en hér er freklega verið að ráðast inn á eignarrétt einstaklinga, það er alveg ljóst. Það hefur sýnt sig alls staðar í heiminum þar sem menn reyna að handstýra fasteignamarkaði eða leigumarkaði að það endar alltaf illa. Textinn sem ég las, hér eru nokkur orð: „draga úr skattalegum hvata einstaklinga til að beina sparnaði í íbúðarhúsnæði umfram aðrar fjárfestingar“. Þetta er flókinn texti og mér finnst ekkert skrýtið að reyna að útskýra á mannamáli fyrir fólki hvað það þýðir þrátt fyrir að stjórnarliðum þyki það skrýtið. Þetta þekki ég nú bara sem kennari, það þarf að tengja hlutina við raunveruleikann þannig að menn skilji. Auðvitað eru það einhverjir sem skilja þarna úti en ég efast um að nokkur sé að fetta fingur út í það aðrir en stjórnarþingmenn með yfirburðalesskilning.

Þetta er úr greinargerðinni varðandi þessa lækkun á frítekjumarki leigutekna: Frítekjumark fjármagnstekjuskatts af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði skal vera lækkað úr 50% niður í 25%. Þetta hljómar mögulega vel í eyrum fólks en hér er fullt af fólki sem á aukaíbúð, er með barn í skóla einhvers staðar eða hefur erft íbúð og er að taka af henni leigutekjur, er að halda henni við, og verið er að taka verulega aukaskatta af tekjum þess með þessari aðgerð. Það er óskiljanlegt að ekki sé farið í þær aðgerðir að brjóta nýtt land og skipuleggja ný hverfi. Ég veit að ríkisstjórnin hefur ekki beina aðkomu að því hér í landi sveitarfélaganna en það væri auðveldlega hægt að gera samning við sveitarfélögin og ræða um sameiginlega uppbyggingu húsnæðismarkaðarins í stað þess að fara með handafli inn og reyna að laga markaðinn eftir að menn hafa í raun farið offari í þéttingu byggðar, byggjandi íbúðir sem enginn hefur áhuga á. Þetta er alveg dæmigert. Við höfum séð þetta í fleiri borgum þar sem þetta hefur verið reynt og það endar venjulega illa á einhvern hátt. Þetta endar á þeim sem minnst mega sín og minnst hafa milli handanna þegar menn ætla sér eitthvað annað. Ég efast ekki um að það sé góður vilji hjá ríkisstjórninni en við höfum bara séð hvernig þetta hefur snúist í höndunum á fólki. Alveg eins og með erfðafjárskattinn, sem má hrósa ríkisstjórninni og efnahags- og viðskiptanefnd fyrir að taka út. Það þarf ákveðið sjálfstraust í að taka út eitthvað sem menn hafa sett á prent og það er gott. Hér mætti líka vera sjálfstraust í þessu, að telja þetta fólk sem á eina aukaíbúð eða fleiri til venjulegs fólks og skattleggja það ekki svona mikið. Það kom fram í ræðu hæstv. félagsmálaráðherra að venjulegt fólk væri það tekjulægsta. Annað fólk — alla vega tiltók hæstv. ráðherra ekki að annað fólk væri líka venjulegt fólk fyrr en hæstv. ráðherra var krafinn svara og sagði þá að allt fólk væri venjulegt fólk. Það er því nokkuð ljóst að ríkisstjórnin er að fara grimmt á svig við kosningaloforð sín um að hækka ekki skatta á venjulegt fólk.

Við getum tekið, bara þannig að fólk skilji þetta betur, dæmi um fólk sem er að leigja út íbúð, er með tvær milljónir í tekjur á ári, sem er kannski ekkert óeðlilegt, var með frítekjumark upp á eina milljón og frítekjumarkið er þá orðið hálf milljón eftir það eða 75% virkur skattstofn. Þetta er 50% hækkun á skattstofninum. Allar svona breytingar verður að taka í minni þrepum. Það er ekkert sanngjarnt að fyrirsjáanleikinn sé enginn og þessi pólitíska óvissa sem verður þegar við erum með ríkisstjórn eins og þessa sem hækkar skatta eins og fólk skiptir um nærbuxur — það er óþolandi að vera að reka einhvers konar lítil fyrirtæki eða stærri fyrirtæki þegar þú veist aldrei hvenær þú átt von á því að fá allt í einu inn um lúguna hjá þér umslag þar sem þú færð að vita að skattar hafi verið hækkaðir á þig og þú varst búinn að gera ráð fyrir því að það yrði ekki gert. Venjulegt fólk gerir einhvers konar fjárhagsáætlanir fram í tímann en hér er þessu slengt fram einn, tveir og þrír, ekkert mál og þeir borga sem hafa einhvern tíma náð að fjárfesta eitthvað. Þetta er algjörlega augljós leið til að fækka íbúðum á leigumarkaði, hækka leiguverð, hækka vaxtaprósentu og hækka þar með vexti.

Svo eru það dagsektirnar. Hér erum við að tala um dagsektir frá 10.000 upp í 1 millj. kr. á dag. Þetta er svipað og í öðru frumvarpi sem ég man nú ekki nákvæmlega hvað heitir þannig að ég ætla nú ekki að vísa í það, þegar við erum komnir með gríðarháar dagsektir. Þær kunna að eiga rétt á sér en það er vandmeðfarið að fara með þær ef valdheimildir borgaranna eru ekki styrktar á móti og menn geta ekki varið sig fyrir svona háum sektum. Ég gæti skilið að það væru mjög háar sektir ef það væri eitthvað mikið undir en hver metur meðalhóf og hversu oft verður hámarkinu beitt, milljón á dag? Ef einhver lendir ranglega í dagsektum, hvernig fer það? Við vitum að ríkið er ekki alltaf best í sínu með ótal sérfræðinga á sínum snærum á meðan einstaklingarnir eru að berjast einir gegn ríkinu.

Svo við förum aftur í frumvarpið þá er hér, með leyfi forseta, í greinargerðinni:

„Frumvarpið er samið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu að höfðu samráði við önnur ráðuneyti og ríkisaðila eins og rakið er í 5. kafla um samráð. Með því eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum um skatta, tolla, gjöld og nokkur fleiri atriði.“

Hér veltir maður fyrir sér hvers vegna aðhaldið er ekki meira og menn fjarlægjast þessa skattastefnu. Ég held að almenningur í landinu væri miklu frekar til í að það væri dregið úr ríkisrekstri, það væri ekki útgjaldaaukning upp á 143 milljarða, það væri dregið úr ríkisumsvifum og skattar myndu ekki hækka eins og þeir hafa gert og eru að gera í þessu frumvarpi.

En það má líka hrósa fyrir það sem vel er gert og hér er verið að leggja til að gildistími bráðabirgðaákvæðis um skattfrádrátt vegna hlutabréfakaupa verði framlengdur um tvö ár. Þetta er gott og það má alveg segja það upphátt. Hvernig þetta komst inn þarna er aftur á móti sérstakt.

Happdrætti háskólans er undanþegið skattskyldu af fjármagnstekjum en háskólinn er, að ég best veit, samt sem áður að reka vafasama spilakassa, nema þeir séu hættir því, ég held nú ekki. Það er þá allt skattfrjálst og við vitum hvernig neyð þeirra sem eru haldnir spilafíkn er, menn geta hent milljónum í það á nánast nokkrum augnablikum.

Hér eru lægri tollar á grænmeti framlengdir út 2026. Þetta er til að tryggja framboð og koma í veg fyrir verðhækkanir. Að ákveðnu leyti verður maður að átta sig á því að allir tollar og annað slíkt bíta mann á endanum í rassinn þótt ég skilji þetta að einhverju leyti, að hér sé innlendur markaður og fæðuöryggi skiptir máli.

Frítekjumark barna er hækkað og það er gott. Hér má líka hrósa hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir að hækka frítekjumark barna. Það fer upp í 300.000 og það er í raun gert í skrefum. Þetta er ágætt. Ég myndi sjálfur vilja sjá þessa tölu töluvert hærri en mér þykir alveg eðlilegt að þetta sé tekið í skrefum alveg eins og skattahækkanirnar ættu að vera í skrefum.

Menn hafa rætt um innviðagjöldin á skemmtiferðaskipin sem voru náttúrlega afglöp fyrri ríkisstjórnar að mínu mati. Menn hefðu aldrei átt að leggja þau á. Við sjáum að þau eru víti til varnaðar varðandi hvernig skattahækkanir geta farið með — ég ætla ekki að segja heila atvinnugrein en samt sem áður anga atvinnugreinar sem eru skemmtiferðaskipin í höfnum landsins. Komum þeirra fækkaði um 95%. Þegar samkeppnishæfni landsins minnkar þá fer fólk bara annað. Það eru fleiri staðir en Ísland til að heimsækja og þetta er hættan við allar þær skattahækkanir sem ríkisstjórnin hefur birt síðustu vikur og mánuði. Það sem kann að virðast fugl í hendi í dag verður fugl í skógi seinna. Það er þekkt að skattahækkanir koma til með að draga úr frumkvæði, að menn taki áhættu, menn séu viljugir til að skapa eitthvað nýtt, skapa ný verðmæti úr einhverju sem er ekki verðmæti. Þess vegna er þessi stefna ríkisstjórnarinnar, bæði með fjárlögunum og svo bandormi I og II — þetta eru ótrúlega miklar og fjölbreyttar skattahækkanir sem lenda á meginþorra almennings, meginþorra venjulegs fólks, bæði þeim sem eru í hárri tekjutíund og þeirri lægstu og öllum þar á milli. Það mætti spyrja hvers vegna stjórnarandstaðan leyfir þessu ekki bara að rúlla öllu í gegn andmælalaust og leyfir ríkisstjórninni að taka afleiðingum þess að þjóðin finni harkalega fyrir þessum skattahækkunum. Það er vegna ábyrgðartilfinningar stjórnarandstöðunnar. Við erum ekki eins og stjórnarandstaðan sem var hjá síðustu ríkisstjórn. Þegar síðasta ríkisstjórn, starfsstjórnin, hækkaði komugjöldin fyrir farþegaskipin heyrðist ekki múkk úr stjórnarandstöðunni. Þannig stjórnarandstaða er ekki að störfum í dag. Stjórnarandstaðan sem er í dag er að störfum fyrir almenning í landinu, fyrir allan almenning, allt venjulegt fólk og óvenjulegt. Við tökum ekki út ákveðinn hóp fólks og segjumst vera að vinna fyrir hann eins og hæstv. ríkisstjórn gerir en skilur menn síðan eftir í rykinu. Þarna er munurinn á stjórnarandstöðunni núna og stjórnarandstöðunni þá.

Ég hef farið yfir ýmislegt í þessum bandormi II og viðurkenni að ég hef langmestar áhyggjur af þessum verulega aukna skatti á leigutekjur því það mun bitna á því fólki sem er fast á leigumarkaði. Það mun hafa veruleg áhrif, þetta eru tugþúsundir á mánuði og hundruð þúsunda á ári fyrir venjulegt fólk á leigumarkaði. Það mun líka letja sveitarfélögin til að brjóta nýtt land. Sveitarfélögin munu mögulega horfa til ríkisins og segja: Heyrðu, ríkið er hér að fjölga íbúðum með auknum sköttum á leigutekjur, við getum dregið lappirnar enn þá. Það er ekki það sem Reykjavíkurborg þarf. Reykjavíkurborg þarf hvata til að fara að brjóta nýtt land og byggja húsnæði sem fólk vill búa í og vill kaupa. Það þýðir ekki að vera með hálft bílastæði eða ekkert á hverja íbúð. Ég vona bara að almenningur sem er að fylgjast með hugsi vandlega um þetta þegar hann lætur atkvæði sitt í kjörkassann núna í vor.