157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[21:06]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Mig langaði að spyrja hv. þingmann aðeins nánar út í þetta atriði með leigutekjurnar og hvort þær skili sér. Ég fór yfir það í minni ræðu að ég tel svo ekki vera nema að einhverju litlu leyti. En aðallega hef ég áhyggjur af því hverjum þetta bitnar helst á. Leigufélögin eru alveg með allt ókei hvað sig varðar. Þau eru bara með þetta í félögum og geta notað, eðlilega, útgjöld á móti tekjum. En ástæðan fyrir því að einstaklingar eru með önnur viðmið varðandi skatta á útleigu er vegna þess að það var verið að reyna að jafna leikinn, ef svo mætti segja, því ef þú ert að leigja út þína íbúð, flytur kannski tímabundið til útlanda og ert með litla íbúð í húsinu þínu, það eru þeir aðilar sem geta ekki haft fasteignir í félögum. Þú ferð ekki með eigin eign í félag. Þetta eru aðilar sem eru yfirleitt bara að rukka leigu nákvæmlega fyrir það sem þeir þurfa. Og hvað gerist núna? Þeir þurfa náttúrlega að hækka leiguna, þannig að leiguverð hækkar og það er bara búið að sýna fram á það og það er enginn vafi á því lengur. En þetta mun hækka skatta á þessa aðila og ég skil ekki alveg tilganginn með því af því að markmiðið mun ekki nást fram, að hér losni um íbúðir á fullu. Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála því að þetta sé kannski misráðin aðgerð ef það á að ná markmiðum frumvarpsins eða því sem tilgangurinn er sagður vera.