157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[21:08]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir gott andsvar. Þetta frumvarp beinist náttúrlega gegn einstaklingum, það beinist náttúrlega ekki gegn þeim sem eru með íbúðir í félögum og hv. þingmaður fór bara ágætlega yfir þetta. Víða um samfélagið eru litlar íbúðir sem eru þess eðlis að menn eru ekki að fara að selja þær. Menn hugsa jafnvel til lengri tíma að barn eða barnabarn geti verið þar á meðan það er í námi eða að byrja búskap eða eitthvað slíkt. Þessar íbúðir koma ekki til með að fara út á markaðinn. Það er bara tvennt sem getur gerst í þessu. Annars vegar það að íbúðin stendur tóm. Það gæti gerst vegna þess að fólk hefur ekki þá þann hvata til að leigja út íbúðina þegar verið er að taka svona mikinn skatt af leigutekjunum. Þá vill fólk mögulega hafa íbúðina lausa þannig að menn geti boðið vinum og vandamönnum að gista þar. Það er það sem gæti gerst eða þá að menn leigi út íbúðina og ýti þar með hækkuninni út í leiguverðið. Þá erum við að láta leigjendur borga í raun þetta sem ríkið ætlar að kraka til sín í gegnum þennan skatt. Þetta í frumvarpinu, þessum bandormi II, ég held að allir hagfræðingar sjái það og bara venjulegt fólk ber skynbragð á það og þeir sem eiga eignir finna það alveg að þetta er ekki þannig að þeir komi til með að losa eignina og hún fari bara á markað og það verði allt í einu þúsundir eigna til sölu í viðbót. Ég held að það sé alveg ljóst að það verður ekki þannig. Þetta mun hækka leiguverð og þeir sem eiginlega síst mega við því, leigjendur, munu borga þessa mögulegu skattahækkun sem kemur inn, ef ríkið fær eitthvað út úr þessu á endanum.